Gylfi Sig styður Hjóla-Róbert 23. júlí 2012 13:00 Róbert ætlar að hjóla eftir þjóðvegi 1 hringinn um landið og félagi hans Baldvin Sigurðsson fylgir honum eftir á bíl. Fréttablaðið/Valli „
Ég ætla að hjóla eftir þjóðvegi eitt og þetta eru alls um 1.332 kílómetrar," segir Róbert Þórhallsson hjólakappi, sem leggur upp í hringferð um Ísland 7. ágúst til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna (SKB). Róbert hefur fengið stuðning úr ýmsum áttum og er þegar búinn að fá gistingar-, bíla- og bensínstyrki svo dæmi séu nefnd. Hann hafði samband við Gylfa Sigurðsson fótboltastjörnu og óskaði eftir stuðningi frá honum. „Ég fann hann á Facebook og sendi honum póst. Ég bjóst samt ekki við að fá svar þar sem ég myndi halda að innboxið hjá manni eins og Gylfa Sigurðssyni væri dálítið fullt," segir Róbert. Gylfi svaraði honum þó innan fárra daga og sagðist endilega vilja vera með ef hann mætti. Gylfi er nýbúinn að skrifa undir samning við fótboltafélagið Tottenham og ætlar að leggja sitt af mörkum með að gefa eitt stykki áritaða Tottenham-treyju í söfnunina. „Hann er greinilega frábær einstaklingur," segir Róbert, sem sjálfur er Arsenal-maður en gæti samt vel hugsað sér að festa kaup á Tottenham-treyju merktri Gylfa. Treyjan verður gefin heppnum aðila sem er vinur Facebook-síðu Róberts, sem ber heitið 1332km. Róbert gefur sér 10 daga til að hjóla hringinn, en félagi hans Baldvin Sigurðsson fylgir honum eftir á bíl. Róbert er vel í stakk búinn fyrir ferðina og segist hjóla hvert sem hann fer. „Það er óþarfi að eiga bíl í svona lítilli borg," segir hann. Hægt er að styrkja átakið með því að hringja í styrktarnúmerið 9033001 til að gefa 1.000 krónur og 9033003 til að gefa 3.000 krónur. Allir peningarnir renna alveg óskiptir til SKB. - trs
Mest lesið Megas er látinn Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Britney á stóra skjáinn Bíó og sjónvarp Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Harry Styles setti heimsmet Lífið Fleiri fréttir Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Sjá meira