Lífið

Gylfi Sig styður Hjóla-Róbert

Róbert ætlar að hjóla eftir þjóðvegi 1 hringinn um landið og félagi hans Baldvin Sigurðsson fylgir honum eftir á bíl.
Fréttablaðið/Valli
Róbert ætlar að hjóla eftir þjóðvegi 1 hringinn um landið og félagi hans Baldvin Sigurðsson fylgir honum eftir á bíl. Fréttablaðið/Valli
„Ég ætla að hjóla eftir þjóðvegi eitt og þetta eru alls um 1.332 kílómetrar," segir Róbert Þórhallsson hjólakappi, sem leggur upp í hringferð um Ísland 7. ágúst til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna (SKB).

Róbert hefur fengið stuðning úr ýmsum áttum og er þegar búinn að fá gistingar-, bíla- og bensínstyrki svo dæmi séu nefnd. Hann hafði samband við Gylfa Sigurðsson fótboltastjörnu og óskaði eftir stuðningi frá honum. „Ég fann hann á Facebook og sendi honum póst. Ég bjóst samt ekki við að fá svar þar sem ég myndi halda að innboxið hjá manni eins og Gylfa Sigurðssyni væri dálítið fullt," segir Róbert. Gylfi svaraði honum þó innan fárra daga og sagðist endilega vilja vera með ef hann mætti. Gylfi er nýbúinn að skrifa undir samning við fótboltafélagið Tottenham og ætlar að leggja sitt af mörkum með að gefa eitt stykki áritaða Tottenham-treyju í söfnunina. „Hann er greinilega frábær einstaklingur," segir Róbert, sem sjálfur er Arsenal-maður en gæti samt vel hugsað sér að festa kaup á Tottenham-treyju merktri Gylfa. Treyjan verður gefin heppnum aðila sem er vinur Facebook-síðu Róberts, sem ber heitið 1332km.

Róbert gefur sér 10 daga til að hjóla hringinn, en félagi hans Baldvin Sigurðsson fylgir honum eftir á bíl. Róbert er vel í stakk búinn fyrir ferðina og segist hjóla hvert sem hann fer. „Það er óþarfi að eiga bíl í svona lítilli borg," segir hann. Hægt er að styrkja átakið með því að hringja í styrktarnúmerið 9033001 til að gefa 1.000 krónur og 9033003 til að gefa 3.000 krónur. Allir peningarnir renna alveg óskiptir til SKB. - trs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.