Lífið

Knattspyrnumaður opnar tískuvöruverslun

Rokkuð götutíska Magnús Már Lúðvíksson, knattspyrnumaður úr KR, og kærasta hans Guðlaug Elísa Einarsdóttir opna tískuvöruverslunina Suzie Q í dag á Ingólfsstræti.Fréttablaðið/anton
Rokkuð götutíska Magnús Már Lúðvíksson, knattspyrnumaður úr KR, og kærasta hans Guðlaug Elísa Einarsdóttir opna tískuvöruverslunina Suzie Q í dag á Ingólfsstræti.Fréttablaðið/anton
„Það er ekki nema svona mánuður síðan við ákváðum að kýla á þetta og höfum því verið hér dag og nótt að gera búðina tilbúna,“ segir Guðlaug Elísa Einarsdóttir sem opnar verslunina Suzie Q ásamt kærasta sínum Magnúsi Má Lúðvíkssyni, knattspyrnumanni úr KR, í dag.

Verslunin er staðsett að Ingólfsstræti 8, í sama húsnæði og verslunin Júniform var áður til húsa. Guðlaug, eða Gulla eins og hún gjarna er kölluð, segir húsnæðið hafa ráðið úrslitum um að þau ákváðu að opna strax í sumar. „Þetta er fullkomið húsnæði fyrir okkur og við gátum ekki sleppt því þegar það losnaði. Upphaflega ætluðum við ekki að gera þetta fyrr en í september.“

Suzie Q verður verslun sem sérhæfir sig í tískufatnaði fyrir bæði kynin. Rokkaðar flíkur í bland við nýjustu götutísku leika lykilhlutverk í búðinni sem einnig býður upp á skartgripi, töskur og fallegar svokallaðar kaffiborðsbækur frá Frakklandi. Þau hafa svo tryggt sér merki á borð við danska Minimum, Dr. Denim og Converse en stefnan er að bæta við fleiri merkjum í framtíðinni. „Núna erum við með vörur frá London og París. Við stefnum á að vera með skemmtilegt andrúmsloft þar sem fólk getur komið, fengið sér kaffisopa og blaðað í bókum.“

Gulla hefur dágóða reynslu úr tískubransanum því hún hefur unnið í innkaupum fyrir NTC undanfarin ár. Magnús, eða Maggi Lú, býr ekki að sömu reynslu en Gulla fullyrðir að tuðruspark og tískubransinn fari vel saman. „Hann hefur komið mér á óvart og veit sínu viti. Upphaflega var það hann sem ætlaði í þennan rekstur einn og ég tróð mér með. Þetta fer vel með æfingunum enda er Frostaskjólið í næsta nágrenni.“ - áp






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.