Knattspyrnumaður opnar tískuvöruverslun 30. júní 2012 09:00 Rokkuð götutíska Magnús Már Lúðvíksson, knattspyrnumaður úr KR, og kærasta hans Guðlaug Elísa Einarsdóttir opna tískuvöruverslunina Suzie Q í dag á Ingólfsstræti.Fréttablaðið/anton „
Það er ekki nema svona mánuður síðan við ákváðum að kýla á þetta og höfum því verið hér dag og nótt að gera búðina tilbúna,“ segir Guðlaug Elísa Einarsdóttir sem opnar verslunina Suzie Q ásamt kærasta sínum Magnúsi Má Lúðvíkssyni, knattspyrnumanni úr KR, í dag. Verslunin er staðsett að Ingólfsstræti 8, í sama húsnæði og verslunin Júniform var áður til húsa. Guðlaug, eða Gulla eins og hún gjarna er kölluð, segir húsnæðið hafa ráðið úrslitum um að þau ákváðu að opna strax í sumar. „Þetta er fullkomið húsnæði fyrir okkur og við gátum ekki sleppt því þegar það losnaði. Upphaflega ætluðum við ekki að gera þetta fyrr en í september.“ Suzie Q verður verslun sem sérhæfir sig í tískufatnaði fyrir bæði kynin. Rokkaðar flíkur í bland við nýjustu götutísku leika lykilhlutverk í búðinni sem einnig býður upp á skartgripi, töskur og fallegar svokallaðar kaffiborðsbækur frá Frakklandi. Þau hafa svo tryggt sér merki á borð við danska Minimum, Dr. Denim og Converse en stefnan er að bæta við fleiri merkjum í framtíðinni. „Núna erum við með vörur frá London og París. Við stefnum á að vera með skemmtilegt andrúmsloft þar sem fólk getur komið, fengið sér kaffisopa og blaðað í bókum.“ Gulla hefur dágóða reynslu úr tískubransanum því hún hefur unnið í innkaupum fyrir NTC undanfarin ár. Magnús, eða Maggi Lú, býr ekki að sömu reynslu en Gulla fullyrðir að tuðruspark og tískubransinn fari vel saman. „Hann hefur komið mér á óvart og veit sínu viti. Upphaflega var það hann sem ætlaði í þennan rekstur einn og ég tróð mér með. Þetta fer vel með æfingunum enda er Frostaskjólið í næsta nágrenni.“ - áp
Mest lesið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Rassaumhirða karla í sókn Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Hætt saman en ennþá vinir Lífið Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno Bíó og sjónvarp Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Fleiri fréttir Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Sjá meira