Slegist um bílnúmerið Barbie 22. júní 2012 14:00 Kærasti Hörpu er að gera upp hinn eina sanna Barbie-bíl, sem verður bleikur með blómum. „
Ég og vinkona mín töluðum alltaf um að fá okkur bleikar bjöllur með einkanúmerinu Barbie því við vorum lágvaxnar og með stutt dökkt hár sem er andstæðan við Barbie," segir Harpa Gunnarsdóttir, sem er með einkanúmerið Barbie á bílnum sínum. Á mánudag greindi Fréttablaðið frá Ingibjörgu Austmann Þorbjörnsdóttur sem er með hið keimlíka einkanúmer Barbí. Í tilviki Hörpu er um kaldhæðni að ræða, en númerið hefur engu að síður vakið eftirtekt. „Númerinu var stolið í þrígang sumarið 2006 í miðbæ Reykjavíkur," segir Harpa. Síðustu sex ár hefur hún verið kennd við Barbie og bloggaði meira að segja undir nafninu Harpa Barbie um stund. Stuldurinn er ekki eina athyglin sem Harpa hefur upplifað vegna númersins því hún hefur fengið nokkur kauptilboð. „Ég fékk einu sinni tilboð upp á hundrað þúsund fyrir það," segir Harpa sem hefur síðan þá hafnað fleiri tilboðum, meðal annars frá Ingibjörgu, sem sætti sig þó við númerið Barbí að lokum. „Hún bauð ekki nægilega mikið í númerið," segir Harpa sem myndi íhuga veglegra tilboð en hundrað þúsund krónur. Þó að draumurinn um bílnúmerið Barbie hafi orðið að veruleika varð ekkert úr bjöllukaupunum. „Ég fékk mér svaðalegan kolsvartan BMW með svörtum rúðum allan hringinn í staðinn og keypti mér númerið á þann bíl. Ég keypti ekki bjöllu því það var eins og að keyra baðkar á hjólum," segir hún. Þessa dagana bíður hún eftir alvöru Barbie-bifreiðinni sinni en kærastinn hennar rekur sprautuverkstæði og gerir upp bíl handa henni í hjáverkum. „Hann verður bleikur með blómum," segir Harpa og bætir við að kærastinn hafi lofað að fá sér bílnúmerið Ken. -hþt
Tengdar fréttir Alltaf verið kölluð Barbí "Ég hef alltaf verið kennd við Barbí,“ segir hin tvítuga Ingibjörg Austmann Þorbjörnsdóttir. Ingibjörg ekur um á eldrauðum Volkswagen Golf með einkanúmerinu Barbí. Hún fékk sér þetta eftirtektarverða bílnúmer í fyrrasumar og hefur vakið nokkra athygli í umferðinni. "Fólk starir mikið á mig þegar ég er að keyra. Það fyndnasta sem ég hef lent í er samt þegar ég kom að litlum stelpum sem voru að reyna að taka númeraplötuna af bílnum,“ segir hún. 18. júní 2012 11:00 Mest lesið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Lífið Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Lífið Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið VÆB bræður á forsíðu BBC Lífið Stefán Teitur á skeljarnar Lífið Vaktin: Seinna undankvöld Eurovision Lífið Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Lífið Joe Don Baker látinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Vaktin: Seinna undankvöld Eurovision VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Sjá meira
Alltaf verið kölluð Barbí "Ég hef alltaf verið kennd við Barbí,“ segir hin tvítuga Ingibjörg Austmann Þorbjörnsdóttir. Ingibjörg ekur um á eldrauðum Volkswagen Golf með einkanúmerinu Barbí. Hún fékk sér þetta eftirtektarverða bílnúmer í fyrrasumar og hefur vakið nokkra athygli í umferðinni. "Fólk starir mikið á mig þegar ég er að keyra. Það fyndnasta sem ég hef lent í er samt þegar ég kom að litlum stelpum sem voru að reyna að taka númeraplötuna af bílnum,“ segir hún. 18. júní 2012 11:00