Hafa engu gleymt 7. júní 2012 06:00 Langi Seli og Skuggarnir voru drulluþéttir á afmælistónleikunum á laugardagskvöldið.
Síðasta laugardagskvöld voru Listahátíðartónleikar Hljómskálans í Eldborgarsal Hörpu. Þeir tókust vel og tónleikagestir gengu sáttur út úr glæsilegum salarkynnunum. Eftir það lá leið mín á tónleika sem voru haldnir á allt öðruvísi stað. Í kjallaranum á Ellefunni við Hverfisgötu voru Langi Seli og Skuggarnir að spila. Þar var stappfullt þegar ég kom á staðinn og þessir fimmtíu sem stóðu þar flestir í kös fyrir framan sviðið voru í miklu stuði. Hljómsveitin Langi Seli og Skuggarnir var stofnuð á rústum hinnar goðsagnarkenndu „kill‘embilly“-sveitar Oxzmá árið 1987. Hljómsveitin gerði tvær EP-plötur og eina stóra plötu áður en hún lagði upp laupana sjö árum seinna. Hún var endurvakin með nokkuð breyttri mannaskipan og árið 2009 gaf hún út plötu númer tvö, Drullukalt. Ágætis plata að mestu leyti í svipuðum stíl og fyrri platan. Í dag er hljómsveitin fjögurra manna; sem fyrr skipuð þeim Langa Sela (gítar og söngur) og Jóni Skugga (bassi). Erik Qvick spilar svo á trommurnar og Þorgils Björgvinsson („Gilsi gítar“) á gítar. Tónleikarnir á Ellefunni voru haldnir í tilefni af 25 ára afmæli hljómsveitarinnar. Eins og áður segir var mikil stemning. Hljómsveitin var drulluþétt og gleðin og töffaraskapurinn skein úr andlitum hljómsveitarmeðlima. Mér er til efs að bandið hafi nokkurn tíma verið betra. Langi Seli spilar uppfærða útgáfu af rokkabillítónlist sjötta áratugarins. Hljómburðurinn í kjallaranum á Bar 11 var fínn og tónlistin virkaði jafn vel og hún gerði hjá Langa Sela fyrir aldarfjórðungi, nú eða hjá rokkabillífrumkvöðlunum nokkrum áratugum fyrr. Þetta var klassísk stund þarna í kjallaranum og helst að manni væri kippt inn í nútímann þegar sveitin spilaði ofursmellinn Breiðholtsbúgí og myndavélasímarnir fóru á loft…
Mest lesið Einn mánuður án áfengis breytti öllu Lífið Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Eitt allra krúttlegasta mót ársins Lífið Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Fleiri fréttir Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Sjá meira