Lífið

Hafa engu gleymt

Langi Seli og Skuggarnir voru drulluþéttir á afmælistónleikunum á laugardagskvöldið.
Langi Seli og Skuggarnir voru drulluþéttir á afmælistónleikunum á laugardagskvöldið.
Síðasta laugardagskvöld voru Listahátíðartónleikar Hljómskálans í Eldborgarsal Hörpu. Þeir tókust vel og tónleikagestir gengu sáttur út úr glæsilegum salarkynnunum. Eftir það lá leið mín á tónleika sem voru haldnir á allt öðruvísi stað. Í kjallaranum á Ellefunni við Hverfisgötu voru Langi Seli og Skuggarnir að spila. Þar var stappfullt þegar ég kom á staðinn og þessir fimmtíu sem stóðu þar flestir í kös fyrir framan sviðið voru í miklu stuði.

Hljómsveitin Langi Seli og Skuggarnir var stofnuð á rústum hinnar goðsagnarkenndu „kill‘embilly“-sveitar Oxzmá árið 1987. Hljómsveitin gerði tvær EP-plötur og eina stóra plötu áður en hún lagði upp laupana sjö árum seinna. Hún var endurvakin með nokkuð breyttri mannaskipan og árið 2009 gaf hún út plötu númer tvö, Drullukalt. Ágætis plata að mestu leyti í svipuðum stíl og fyrri platan.

Í dag er hljómsveitin fjögurra manna; sem fyrr skipuð þeim Langa Sela (gítar og söngur) og Jóni Skugga (bassi). Erik Qvick spilar svo á trommurnar og Þorgils Björgvinsson („Gilsi gítar“) á gítar. Tónleikarnir á Ellefunni voru haldnir í tilefni af 25 ára afmæli hljómsveitarinnar.

Eins og áður segir var mikil stemning. Hljómsveitin var drulluþétt og gleðin og töffaraskapurinn skein úr andlitum hljómsveitarmeðlima. Mér er til efs að bandið hafi nokkurn tíma verið betra. Langi Seli spilar uppfærða útgáfu af rokkabillítónlist sjötta áratugarins. Hljómburðurinn í kjallaranum á Bar 11 var fínn og tónlistin virkaði jafn vel og hún gerði hjá Langa Sela fyrir aldarfjórðungi, nú eða hjá rokkabillífrumkvöðlunum nokkrum áratugum fyrr. Þetta var klassísk stund þarna í kjallaranum og helst að manni væri kippt inn í nútímann þegar sveitin spilaði ofursmellinn Breiðholtsbúgí og myndavélasímarnir fóru á loft…






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.