Lífið

Teri Hatcher var einfari

Eva Longoria segir að Teri Hatcher sé algjör einfari.
Eva Longoria segir að Teri Hatcher sé algjör einfari.
Eva Longoria segir að Teri Hatcher, mótleikkona hennar í sjónvarpsþáttunum Desperate Housewives, sé einfari.

Áttunda og síðasta þáttaröðin lauk nýlega göngu sinni í Bandaríkjunum og Longoria tjáði sig um samskiptin við mótleikkonur sínar í viðtali við tímaritið OK!

Aðspurð hvort hún hafi átt í deilum við Hatcher segir Longoria að hún hafi verið einfari og haldið sig út af fyrir sig. „Ég, Marcia [Cross] og Felicity [Huffman] vorum miklu nánari vegna þess að við erum stelpulegar og höfðum gaman af því að vera saman. Hún vildi ekki vera með okkur. Það voru engin leiðindi. Ég held bara að hún sé bara þannig persónuleiki."

Longoria hyggst nú snúa sér að kvikmyndum. Hún leikur meðal annars í væntanlegu myndunum The Truth og Long Time Gone.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.