Inga kvaddi Nasa með tárum 30. maí 2012 09:00 Starfsfólkið af Nasa fékk lögregluna og slökkviliðið í lið með sér og kom Ingu í opna skjöldu á lokakvöldi skemmtistaðarins síðastliðin laugardag. „
Þetta var fullkomið lokakvöld. Sérstaklega var ég ánægð með að Palli skyldi hafa átt síðasta sönginn í húsinu en það var mín ósk,“ segir Inga, framkvæmdastjóri og eigandi skemmtistaðarins Nasa, um Eurovisionpartý Páls Óskars þar síðastliðið laugardagskvöld. Ballið var síðasti viðburðurinn sem haldinn verður á Nasa, en til stendur að reisa hótel á lóðinni. Páll Óskar endaði frábært og tilfinningaþrungið kvöldið með því að syngja Abba lagið Thank you for the Music án undirspils. Inga stóð með honum á sviðinu og gat ekki tára bundist. Starfsfólk Nasa kom henni svo í opna skjöldu með gjöfum og skemmtilegri uppákomu. „Ég er algjör dramadrottning og mikið í mun að allt sé í lagi gagnvart lögreglunni og slökkviliðinu. Starfsfólkið fékk þá því í lið með sér og þeir komu á mitt ball og hótuðu að henda öllum út. Ég byrjaði að æsa mig við þá og var við það að fá taugaáfall þegar þeir dróu mig upp á svið, en ég ætlaði ekki að trúa því að þeir ætluðu að handtaka mig uppi á sviði fyrir framan alla. Þá hvíslaði einn þeirra að mér að þetta væri bara djók ef ég væri ekki búin að átta mig á því ennþá, sem ég var ekki búin að gera,“ rifjar Inga upp hlæjandi. Þegar Fréttablaðið náði tali af henni var hún á fullu að pakka staðnum saman. „Þetta er ótrúlega erfitt en það er ekkert búið fyrr en það er búið. Nú þarf fólk bara að láta í sér heyra og sýna að það sé ósátt við lokunina,“ segir hún. Hún reynir þó að horfa bjartsýn fram á veginn. „Síðustu 10 ár hefur líf mitt snúist um Nasa en ég býst við að þegar einar dyr lokist opnist yfirleitt aðrar.“ -trs
Mest lesið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið Megas er látinn Lífið Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Fleiri fréttir Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ Sjá meira