Farðar stjörnurnar fyrir rauða dregilinn í Cannes 29. maí 2012 10:15 Helga Sjöfn Kjartansdóttir farðaði stórstjörnurnar í Cannes og hafði gaman af. „
Þetta var rosaleg keyrsla en alveg ofboðslega gaman og súrrealískt,“ segir Helga Sjöfn Kjartansdóttir sem var á kvikmyndahátíðinni í Cannes þar sem hún sá um að stjörnurnar skörtuðu sínu fegursta áður en þær stigu út á rauða dregilinn. Helga Sjöfn er lærður förðunarfræðingur og er búsett í London þar sem hún er á mála hjá umboðsskrifstofunni InParlour. ?Við vorum 6 manna teymi sem fór til Cannes, einstaklega skemmtileg og vel heppnuð ferð. Ég þurfti því miður að fara snemma heim til London sökum anna,? segir Helga Sjöfn sem naut þess að vera meðal fræga fólksins í Cannes. „Við förðuðum þó nokkuð margar stórstjörnur sem við megum því miður ekki nefna á nafn. Þegar maður er að vinna náið með þeim sér maður að þetta er bara allt saman venjulegt fólk og allir sem ég vann með voru einstaklega yndislegir.“ Helga Sjöfn flutti til London fyrir tveimur árum síðan með kærasta sínum sem vinnur í kvikmyndageiranum. Hún viðurkennir að það hafi tekið tíma að komast inn í bransann úti en Helga Sjöfn hefur meðal annars séð um förðun og hár í sjónvarpsþáttunum Ástríður og Hlemmavídeó. „Mestöll mín vinna hérna úti er í gegnum InParlour en ég er aðallega að fara heim til kvenna og farða þær fyrir sérstök tilefni eins og galakvöld, veislur og rauða dregilinn. Það er líka mjög mikið að gera í brúðarförðunum og svo hef ég aðeins verið í sjónvarpsauglýsingum,“ segir Helga Sjöfn en fram undan hjá henni er mikil vinna. „Sem betur fer er nóg af fínum frúm hér í London sem vilja fá förðun, hárgreiðslu, neglur og brúnku áður en þær fara út á lífið. Ég er samt komin með smá heimþrá og sé fram á að komast í heimsókn með haustinu enda sér maður hvað Ísland er frábært þegar maður býr úti.“-áp
Mest lesið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið Megas er látinn Lífið Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Fleiri fréttir Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ Sjá meira