Lífið

Jonas í dómarasætið

Joe Jonas dæmir fegurðarsamkeppni í eigu Donalds Trump.nordicphotos/getty
Joe Jonas dæmir fegurðarsamkeppni í eigu Donalds Trump.nordicphotos/getty
Joe Jonas verður dómari í fegurðarsamkeppninni Ungfrú Bandaríkin ásamt Rob Kardashian, raunveruleikastjörnunni Ali Fedotowsky og sjónvarpsmanninum George Kotsiopoulos. Keppnin er í eigu milljarðamæringsins Donalds Trump.

Fegurðarsamkeppnin fer fram í Las Vegas í byrjun júní og verða Andy Cohen og Giuliana Rancic kynnar hennar. Sigurvegarinn tryggir sér sæti í keppninni Ungfrú heimur sem fer fram síðar á árinu.

Frægðarsól Jonas reis á árinu 2009 þegar hann sló í gegn ásamt bræðrum sínum með hljómsveitinni The Jonas Brothers. Í fyrra ákvað söngvarinn þó að einbeita sér að sólóferli sínum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.