Tekinn fram yfir þekkta norska leikara 25. maí 2012 14:30 Leikarinn Ívar Örn Sverrisson var valinn umfram þekkta norska leikara í burðarhlutverk í alþjóðlega sjónvarpsauglýsingu fyrir Fisherman´s Friend. „
Þetta er ein af þessum stóru auglýsingum sem maður vill gjarnan næla sér í," segir leikarinn Ívar Örn Sverrisson sem á dögunum landaði burðarhlutverki í alþjóðlegri sjónvarpsauglýsingu fyrir Fisherman"s Friend hálstöflurnar. Ívar fékk verkefnið í gegnum norska umboðsskrifstofu sína en hann hefur verið búsettur í Noregi með eiginkonu og tveimur börnum í tæp tvö ár. Hann bjóst aldrei við að fá hlutverkið og segir þetta oftast byggjast á heppni og að vera með rétt útlit á réttum tíma. „Ég er mjög ánægður með þetta og mér var sagt að ég hafi verið valinn umfram marga þekkta norska leikara," segir Ívar og giskar á að skeggið hafi heillað aðstandendur auglýsingarinnar. „Ég var ekki búinn að raka mig í nokkra daga fyrir prufuna og útlitið hentaði því vel í þennan sjóara." Auglýsingin verður tekinn upp í sjávarþorpi í Noregi á næstu dögum en Ívar fer með hlutverk sjómanns og á móti honum leikur bresk leikkona. Um er að ræða endurgerð á klassískri auglýsingu hálstaflanna sterku og verður hún sýnd á austurströnd Bandaríkjanna með haustinu. „Þetta er gott verkefni að fá og ég get viðurkennt að þetta er ágætlega borgað." Ívar hefur komið sér vel fyrir í Noregi en segir að það hafi ekki alltaf hafa verið auðvelt. „Ég hef alveg þurft að brjóta mér leiðir í gegnum marga múra hérna. Það hjálpar að geta loksins tjáð sig á tungumáli innfæddra og svo er þetta bara snjóbolti sem vindur upp á sig. Þó maður sakni ýmissa á Íslandi á ég ekki von á því að við fjölskyldan komum heim í bráð enda líður okkur mjög vel í Ósló." -áp
Mest lesið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Megas er látinn Lífið Fleiri fréttir Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Sjá meira