Fær ráðleggingar frá The Charlies í gegnum Skype 17. maí 2012 11:00 Lagið Hring eftir hring í flutningi söngkonunnar ungu Elínar Lovísu Elíasdóttur er á leiðinni í spilun á næstu dögum. Texti lagsins er skrifaður af Ölmu í stúlknasveitinni The Charlies en Elín er yngri systir Klöru í sveitinni. Fréttablaðið/stefán „
Ég ætlaði aldrei að leiðast út í þennan bransa en smitaðist af tónlistarbakteríunni í Versló,“ segir hin 21 árs gamla söngkona Elín Lovísa Elíasdóttir sem gefur út lagið Hring eftir hring á næstu dögum. Hring eftir hring er fyrsta lagið sem Elín gefur út upp á eigin spýtur en hún vakti athygli er hún söng með rapparanum Kristmundi Axel í laginu Það birtir alltaf til árið 2010. „Ég byrjaði að leika mér að syngja í Versló og tók meðal annars þátt í söngkeppninni. Þá varð ekki aftur snúið og er draumurinn að gefa út heila plötu.“ Elín er yngri systir söngkonunnar Klöru í stúlknasveitinni The Charlies svo það má segja að tónlistin sé í fjölskyldunni. Elín segir stóru systur sína, Steinunni og Ölmu vera duglegar að hvetja sig áfram. „Ég væri ekki að gera þetta án Klöru og þeirra allra. Við erum duglegar að hittast á Skype og þær gefa mér ráðleggingar varðandi hitt og þetta,“ segir Elín, en Alma á einmitt heiðurinn af texta lagsins Hring eftir hring sem er samið af strákunum í upptökuteyminu ReddLights. Elín er á fyrsta ári í viðskiptafræði í Háskólanum í Reykjavík og verður bankastarfsmaður í sumar. Hún fer þó ekki leynt með að draumurinn sé að starfa í tónlistarbransanum í framtíðinni. „Ég ætla bara að bíða og sjá hvernig viðtökurnar verða við laginu. Það væri draumur að geta gert meira úr tónlistinni og jafnvel setjast að erlendis og einbeita sér að þessu eins og systir mín er að gera. Ég hef einu sinni farið í heimsókn til þeirra til Los Angeles svo maður er allavega komin með nokkur góð sambönd.“ Lagið Hring eftir Hring er hresst rafpopplag sem Elín hefur trú á að geti orðið vinsælt á dansgólfum borgarinnar í sumar. „Þetta er þannig lag að það getur vel orðið sumarslagari. Ég er bara glöð að lagið sé loksins á leið í spilun. Við höfum verið að tala um þetta lengi og ferlið tekið sinn tíma. Nú er bara að bíða og sjá hvernig landsmenn taka laginu.“ Hring eftir hring verður frumflutt í morgunþættinum Magasín á FM957 á morgun. alfrun@frettabladid.is
Mest lesið Einn mánuður án áfengis breytti öllu Lífið Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Áskorun Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Eitt allra krúttlegasta mót ársins Lífið Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Fleiri fréttir Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Sjá meira