Væntingarnar eru miklar 10. maí 2012 15:00 Beach House Hljómsveitin Beach House gefur út sína fjórðu plötu eftir helgi.
Hljómsveitin Beach House er mætt með sína fjórðu plötu, Bloom. Hún telst vera rökrétt framhald af hinni vel heppnuðu Teen Dream. Fjórða plata bandaríska draumpoppsdúettsins Beach House kemur út eftir helgi. Íslenskir tónlistarunnendur sem sáu hljómsveitina spila í Listasafni Reykjavíkur á Airwaves-hátíðinni í fyrra munu vafalítið gefa plötunni gaum, enda tókust tónleikarnir einkar vel. Þar sveif seiðandi rödd söngkonunnar Victoriu Legrand yfir vötnum í bland við draumkennda og afslappandi tóna Alex Scally. Beach House var stofnuð árið 2005. Scally spilar á gítar og hljómborð og Legrand syngur og spilar á orgel. Hann er frá Baltimore en hún er fædd í Frakklandi. „Við hittumst í Baltimore. Ég er þaðan en Victoria flutti þangað, eiginlega til að spila tónlist. Eitt leiddi af öðru. Ætli örlögin hafi ekki verið að verki,“ sagði Scally í viðtali við Fréttablaðið í fyrra. Nýi gripurinn nefnist Bloom og telst hún vera rökrétt framhald af Teen Dream sem kom út fyrir tveimur árum við frábærar undirtektir gagnrýnenda. Hún lenti ofarlega á mörgum árslistum og eru væntingarnar því miklar í þetta sinn. Fjórar stjörnur í tímaritinu Q gefa til kynna að hljómsveitin er enn í góðum gír. Bloom, sem kemur út á vegum Sub Pop, var tekin upp í bænum Tornillo í Texas seint á síðasta ári en hljómjöfnuð í New York-borg. Legrand og Scally önnuðust upptökustjórn ásamt Chris Coady, sem vann einnig með þeim að Teen Dream. Hann þykir einkar lunkinn eins og ferilskrá hans ber vott um því hann hefur starfað með Yeah Yeah Yeahs, TV on the Radio og nú síðast rokkurunum hressilegu í Smith Westerns. Lögin á Bloom, þar á meðal fyrsta smáskífulagið Myth, voru mestmegnis samin þegar hljómsveitin var á tveggja ára tónleikaferð um heiminn en þegar heim var komið til Baltimore voru þau fínpússuð fyrir upptökur. „Þessar lagasmíðar eru bara eðlilegt framhald fyrir okkur. Við förum í tónleikaferðir og semjum síðan lög. Það er bara það sem við gerum,“ sagði Scally, spurður út í væntanlega plötu. Beach House er í tónleikaferð um Bandaríkin um þessar mundir en ferðast svo með draumpoppið sitt til Evrópu áður en förinni verður aftur heitið vestur um haf í byrjun júlí. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Einn mánuður án áfengis breytti öllu Lífið Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Áskorun Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Eitt allra krúttlegasta mót ársins Lífið Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Fleiri fréttir Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Sjá meira