Danir elska íslenska hönnun 30. apríl 2012 16:00 Guðbjörg Heiða við búðarborðið í Dalíu.
Guðbjörg Heiða Sigurðardóttir rekur verslunina Dalíu í Kaupmannahöfn. Verslunin var opnuð í byrjun mars og selur meðal annars íslenska hönnun sem fellur vel í kramið hjá dönskum frændum okkar. Guðbjörg Heiða hefur búið í Danmörku í rúm fimm ár og vann áður á skemmtistað og kaffihúsi þar sem hún lærði sitthvað um fyrirtækja-rekstur. Hún kveðst alltaf hafa haft gaman af smádóti og hönnun og að það hafi lengi verið draumur hennar að opna litla verslun. „Mamma átti blómabúðina Dalíu í Fákafeninu og búðin er eiginlega tileinkuð henni. Ég sel litríkar gjafavörur og annað smálegt inn á heimilið sem og íslenska hönnun og eigin hönnun sem nefnist Made by Dalía. Danir eru mjög hrifnir af öllu sem telst heimagert og lífrænt þannig að íslenska hönnunin hefur slegið í gegn," útskýrir Guðbjörg Heiða sem naut aðstoðar vina og vandamanna við að koma búðinni af stað. „Þetta var alls ekki erfitt með hjálp fjölskyldu og vina, en án þeirra hefði þetta aldrei verið hægt. Þau unnu með mér myrkranna á milli og það tók okkur ekki nema tvær vikur að koma búðinni í stand og opna hana." Verslunin stendur við Jægersborggade á Norðurbrú þar sem má einnig finna kaffihús, karamelluverksmiðju, litlar fataverslanir og bakarí. Guðbjörgu líkar lífið í Kaupmannahöfn vel og viðurkennir að hún verði æ danskari í sér með hverju árinu sem líður. „Því lengur sem maður býr hér því fastari verða ræturnar og maður verður mjög danskur í sér. En auðvitað er alltaf gott að komast heim til Íslands inn á milli." -sm
Mest lesið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni Reyndist sannspár um koss dauðans Lífið Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Lífið Birna María og Egill eignuðust dreng Lífið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Þetta hefur gefið mér nýtt líf Lífið samstarf Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Fleiri fréttir Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Sjá meira