Framleiða glerlíffæri Siggu Heimis 30. apríl 2012 17:00 Sigga Heimis iðnhönnuður hefur getið sér gott orð fyrir hönnun sína. Árið 2007 hannaði hún glerlíffæri til að vekja athygli á slæmu ástandi í líffæragjöfum í dag.
Hið virta glerlistasafn Corning Museum of Glass í New York, CMOG, hefur hafið framleiðslu á glerlíffærum úr smiðju iðnhönnuðarins Siggu Heimis. Safnið hefur unnið með fjölda þekktra og verðlaunaðra hönnuða á borð við Matali Crasset, James Irvine og Fernando og Humberto Campana að gerð hluta í takmörkuðu upplagi. Verk Siggu verða þau fyrstu sem það fjöldaframleiðir. „Þetta er merkilegt fyrir þær sakir að í fyrsta skipti er safnið að fara að vinna markvisst með hönnuði," segir Sigga sem heldur vestur um haf 13. maí til þess að gefa grænt ljós á fyrstu framleiðsluna. Að hennar sögn verða glerlíffærin til að byrja með seld í verslun CMOG sem hefur hingað til aðeins boðið hluti í fáeinum eintökum. Hún segir svo stefnt að því að selja verkin á völdum söfnum eins og Cooper-Hewitt, MoMa í New York og bandaríska hönnunarsafninu sem CMOG á í samstarfi við. Vekur athygli á mikilvægu málefniHjarta úr gleri.Sigga hóf vinnu við glerlíffærin árið 2007 þegar henni bauðst að halda sýningu á CMOG. Hún segist hafa hannað líffærin meðal annars til að efla umræðu og fræðslu um líffæragjöf sem hún segir að ekki sé í nógu góðum farvegi í dag. „Að vel athuguðu máli komst ég að því að líffæragjafalistar reyndust víða vera fátæklegir og fólk í þriðja heims ríkjum reiðubúið að selja úr sér líffæri gegn greiðslu," nefnir hún. Sýningin á CMOG vakti mikla athygli á sínum tíma og síðan þá hefur kröftug umræða um líffæragjöf skapast þar sem Sigga hefur sýnt glerlíffærin. „Okkur hefur greinilega tekist að hreyfa við fólki. Bæði er glerið heillandi efni og svo virðist sem líffæraumræðan tali til margra," bendir hún á og bætir við að frá 2007 hafi CMOG borist fjöldi fyrirspurna, frá læknum, fjölmiðlum og einkaaðilum sem vilja kaupa eintök af verkum hennar. Þessi gríðarlegi áhugi hafi átt þátt í því að safnið vildi fjöldaframleiða verkin. Sýnir á stórri glerlistasýninguSigga hannaði glerrlífærin meðal annars til að vekja athygli á slæmu ástandi á líffæragjöf í dag.Óhætt er að segja að skammt sé stórra högga á milli hjá Siggu því henni hefur nú í annað sinn verið boðin þátttaka í sýningu á CMOG sem verður opnuð 19. maí. Á sýningunni, sem ber yfirskriftina Making Ideas: Experiments in Design at GlassLab, verða til sýnis glerlistaverk eftir 150 virta hönnuði. Hluti hennar verður helgaður líffærum og þar verða verk Siggu í sviðsljósinu.Nánar má fræðast um sýninguna á heimasíðu CMOG. -rve
Mest lesið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Megas er látinn Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið Fleiri fréttir Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Sjá meira