Í blíðu og stríðu fyrir Eurovision 21. apríl 2012 15:00 Eyrún Elly er hér í miðjunni, ásamt þeim Ölmu Tryggvadóttur og Auði Geirsdóttur samstjórnakonum sínum úr FÁSES. Fréttablaðið/anton „
FÁSES er fyrir Eurovision svipað og félagið Í blíðu og stríðu er fyrir handboltann. Það skapast oft leiðinleg umræða í kringum framlagið okkar og keppendunum veitir ekki af stuðningsneti sem stendur við bakið á þeim í blíðu og stríðu,“ segir Eyrún Elly Valsdóttir, formaður Félags áhugafólks um Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, FÁSES. FÁSES er opinber aðdáendaklúbbur á Íslandi fyrir Eurovision-söngvakeppnina og er með um 100 greiðandi meðlimi. Klúbburinn var stofnaður í september 2011 og tilheyrir alþjóðlegu samtökunum OGAE sem er með um 10.000 félagsmenn um alla Evrópu. „Við stöndum fyrir alls kyns uppákomum í tengslum við keppnina auk þess sem við höldum úti öflugri síðu á Facebook undir heitinu FÁSES-OGAE,“ segir Eyrún Elly. Sex einstaklingar skipa stjórn klúbbsins, fjórar konur og tveir menn, en öll eiga þau það sameiginlegt að vera miklir aðdáendur Eurovision og hafa farið utan til að vera viðstödd aðalkeppnina. Eyrún Elly segist hafa góða tilfinningu fyrir íslenska framlaginu í ár og telur að Greta og Jónsi komi til með að gera góða hluti í Bakú. „Lagið kom merkilega vel út á ensku og svo hjálpar það alveg til hvað er mikið af lélegum lögum í ár. þó mörg þeirra séu reyndar svo vond að þau verða algjör snilld,“ segir Eyrún Elly og bætir við að hennar uppáhaldslag í keppninni sé það sænska, en að enska lagið hafi líka komið henni skemmtilega á óvart. - trs
Mest lesið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Reyndist sannspár um koss dauðans Lífið Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið Þetta hefur gefið mér nýtt líf Lífið samstarf Birna María og Egill eignuðust dreng Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Lífið Fleiri fréttir Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Sjá meira