Heldur námskeið í Eurovision 18. apríl 2012 14:00 Reynir Þór segir mörg góð lög í keppninni í ár en hann telur íslenska lagið þó eiga góðan séns. Hans uppáhaldslög eru frá Svíþjóð, Bretlandi og Serbíu. „
Þetta er bæði hugsað fyrir fólk sem hefur kynnt sér keppnina vel og líka þá sem langar bara að læra aðeins meira,“ segir Reynir Þór Eggertsson, Eurovision-spekúlant, um Eurovision-námskeið sem hann er að fara af stað með hjá Mími símenntun nú síðar í mánuðinum. Námskeiðið hefst miðvikudaginn 25. apríl og er tvö kvöld. „Á fyrra kvöldinu ætlum við að fara yfir fyrstu 41 ár keppninnar, eða þar til símakerfið var tekið upp árið 1997. Á seinna kvöldinu skoðum við svo keppnirnar frá 1997 til dagsins í dag. Áhrif símakosningar, stækkun til austurs og fleira,“ segir Reynir Þór. Reynir segir tilgang námskeiðsins vera að fræða fólk um keppnina. „Það tala til dæmis margir um að Austur-Evrópubúar kjósi alltaf hver annan. Á þessum fimmtán keppnum frá því að símakosningin var tekin upp hefur sama land þó aldrei unnið tvisvar og níu lönd hafa sigrað í fyrsta skipti. Á árunum fimmtán þar á undan unnu Írar hins vegar fimm sinnum, Svíar tvisvar og Norðmenn tvisvar,“ segir Reynir Þór. Það er því greinilegt að almenningur í Evrópu er ekki einungis að kjósa nágranna sína. Þetta er í fyrsta skipti sem námskeiðið er haldið og að sögn Reynis Þórs verður það í tali og tónum. „Ég ætla samt ekki að taka lagið,“ segir hann og hlær. - trs
Mest lesið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Menning „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Fleiri fréttir Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Sjá meira