Spennumynd eftir uppskrift 12. apríl 2012 21:00
Spennumyndin The Cold Light of Day segir frá ungum manni sem fer til Spánar til að hitta fjölskyldu sína en fríið fer ekki eins og til var ætlast og breytist fljótt í baráttu upp á líf og dauða. Myndin er frumsýnd annað kvöld. Með aðalhlutverk fara Henry Cavill, Bruce Willis og Sigourney Weaver undir leiðsögn franska leikstjórans Malbrouk El Mechri. Cavill fer með hlutverk Will Shaw sem flýgur til Spánar til að heimsækja foreldra sína sem búa og starfa í landinu. Fjölskyldan ákveður að eyða sólríkum degi um borð í skútu en eftir rifrildi við föður sinn syndir Will til lands. Þegar hann snýr til baka er skútan mannlaus og leitar Will eftir aðstoð lögreglunnar og upphefst þá spennandi eltingaleikur og leit Wills að fjölskyldu sinni og sannleikanum. Aðalleikarinn, Henry Cavill, varð þekktur fyrir hlutverk sitt sem Charles Brandon í sjónvarpsþáttunum The Tudors og segist hann sjálfur þakka þáttunum fyrir frægð sína og frama. Cavill fer einnig með hlutverk Theseusar í stórmyndinni The Immortals sem frumsýnd var í lok síðasta árs. The Cold Light of Day hefur fengið nokkuð dræma dóma á Netinu og gefur gagnrýnandi The Telegraph henni einungis eina stjörnu og segir leikara sem og leikstjóra sýna lélega byrjendatakta. Á vefsíðunni Imdb.com er myndin sögð hörmuleg eftirlíking á Bourne-þríleiknum og Screen Daily segir Sigourney Weaver vera það eina góða við myndina, en hún þykir sannfærandi í hlutverki sínu sem kaldlyndur CIA útsendari.
Mest lesið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Menning Fleiri fréttir Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Sjá meira