Nördalegustu húðflúr Íslands fundin 1. apríl 2012 14:00 Oddur er með nokkur flúr fyrir utan myndina af Skull kid, þar á meðal er setningin „Am I really Living, or am I just dying“ úr lagi með Trúbrot húðflúruð um hálsinn á honum.
Keppni um nördalegasta húðflúr Íslands var haldin á vegum Nörda norðursins og Bleksmiðjunnar, á Facebook síðu þeirra fyrrnefndu. 69 myndir af nördalegum flúrum bárust í keppnina. „Þetta var nú bara gert í einni lotu, en ég sat í stólnum frá svona 11:30 til 17 með smá pásum,“ segir Oddur Gunnarsson Bauer um húðflúr sitt af Skull Kid, úr tölvuleikjaseríunni Zelda, sem vann keppnina. Keppnin fólst í því að fá sem flest meðmæli á Facebook síðu Nörd Norðursins og Oddur og einn annar keppandi, Andri Már, báru höfuð og herðar yfir aðra í keppninni. Þeir náðu báðir vel yfir 1000 meðmælum meðan aðrir voru að fá frá 18 upp í rúmlega 400. „Ég og vinir mínir vorum duglegir að deila síðunni á Facebook og hvetja fólk til að kjósa. Það er nú yfirleitt þannig sem svona keppnir virka,“ segir Oddur um sigurinn. Það var Sigrún á Bleksmiðjunni sem gerði flúrið. Óskar Hallgrímsson, ljósmyndari og nemi í grafískri hönnun, skartar mynd af Albert Einstein yfir hálfan hægri handlegg sinn. Það var valið nördalegasta flúrið af dómnefnd sem samanstóð af fulltrúum frá Nördum norðursins og Bleksmiðjunni. „Ég er mikill áhugamaður um eðlisfræði, vísindi og mannleg gæði og að mínu mati persónugerir Einstein þessa hluti,“ segir Óskar. Hann hannaði flúrið sjálfur í samvinnu við Jón Þór Ísberg á Kingdom Within Tattoo Studio. „Þetta tók ein fimm eða sex skipti en er sama og tilbúið núna. Ég ætla reyndar að bæta við mynd af Richard Feynman á handlegginn en hann er hinn uppáhalds eðlisfræðingurinn minn,“ segir Óskar. Óskar er flúraður víðsvegar um líkamann og er meðal annars með tvær ljósmyndirnar eftir sig flúraðar á bakið. „Þær eru báðar af mönnum í New York. Annar er göturóni og mig grunar sterklega að hinn sé mafíósi,“ segir Óskar sem er hvergi nærri hættur að leggjast undir nálina. tinnaros@frettabladid.is
Mest lesið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Fleiri fréttir Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Sjá meira