Gamall pylsuvagn verður hverfasjoppa 2. apríl 2012 22:00 Skerfirðingar hafa verið án matvöruverslunar síðan Skerjaver lokaði árið 2008. Mynd/Valli „
Við vorum einfaldlega orðin langþreytt á því að þurfa alltaf að setjast upp í bíl til ná í einn mjólkurpott eða nýtt brauð," segir Sigurður Jens Sæmundsson sem ásamt eiginkonu sinni, Hildi Örnu Hjartardóttur, hefur opnað verslunina Braggann í Skerjafirði. Verslunin er sérstök að því leytinu til að hún er gamall pylsuvagn sem hjónin keyptu á netinu. „Konan mín var andvaka á nýársnótt og sá þá þennan gamla pylsuvagn til sölu á netinu. Við ákváðum því að kýla á þetta og opna lítið kaupfélag í vagninum," segir Sigurður en verslunin er staðsett á lóð Reykjavíkurborgar á gatnamótum Bauganess og Einarsness. „Við fáum að vera hér í þrjá mánuði til að byrja með en okkur skilst að þetta sé eini matsöluvagninn sem er inni í íbúðahverfi en hingað til hafa þeir haldið sig í miðbænum." Sigurður og Hildur eru bæði í fullri vinnu en stefna á að ráða til sín starfsmann og halda búðinni opinni á hverjum degi frá 11-20. Íbúar hverfisins hafa tekið versluninni vel en Bragginn opnaði fyrir skemmstu. Skerfirðingar hafa verið án matvöruverslunar síðan Skerjaver lokaði árið 2008 en næsta búð fyrir íbúa hverfisins er hjá Stúdentagörðunum. „Við dreifðum auglýsingu í hvert hús og höfum fengið 100% jákvæð viðbrögð. Það sakar ekki að láta reyna á þetta og ég vona að við séum komin til að vera," segir Sigurður en vöruúrval Braggans er mjög fjölbreytt. „Við erum með grill og djúpsteikingarpott og í vagninum eru fjórir kælar. Við erum því með allt frá hamborgaratilboðum í smjör, ost og eyrnapinna." -áp
Mest lesið Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Lífið Það er komið gó hjá Bó Lífið Stebbi Jak hættur í Dimmu: „Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins“ Tónlist Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Lífið Svala minnist pabba síns Lífið Tekur við af dóttur kærastans Lífið Sex þúsund miðar seldust upp á innan við mínútu Tónlist Leikarinn Michael Patrick látinn eftir baráttu við MND Bíó og sjónvarp Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Lífið Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Lífið Fleiri fréttir Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Sjá meira
Stebbi Jak hættur í Dimmu: „Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins“ Tónlist
Stebbi Jak hættur í Dimmu: „Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins“ Tónlist