Óþægilegt á nærbuxunum 26. maí 2012 08:30 Zac Efron á frumsýningu The Paperboy í Cannes. Hann segir að hlutverkið hafi verið mjög krefjandi. nordicphotos/getty
Zac Efron segir að það hafi verið krefjandi að leika í myndinni The Paperboy og að hlutverkið sé öðruvísi en fólk eigi að venjast frá honum. Hinn 24 ára leikari er þekktastur fyrir High School Musical-myndirnar. Í dramanu The Paperboy leikur hann á móti Nicole Kidman og Matthew McConaughey og viðurkennir að það hafi verið gaman að sýna á sér nýja hlið. „Ég er mjög ánægður með það sem ég hef gert hingað til en þetta var nýtt fyrir mér og ótrúlega gefandi. Þetta var draumur í dós og vonandi get ég haldið áfram á þessari braut,“ sagði Efron á Cannes-hátíðinni. Í myndinni er hann mikið á nærbuxunum og viðurkennir að það hafi verið óþægilegt að taka upp þau atriði. „Ég held að mér hafi ekkert átt að líða vel. Persónan er að læra inn á lífið og tilveruna og það getur verið mjög óþægilegt en það er líka mjög spennandi.“ Kidman hafði gaman af því að fækka fötum í myndinni og segir að það hafi verið áskorun. „Sem leikkona var ég búin að leita í nokkurn tíma að einhverju hráu og hættulegu eins og þessu.“ Leikstjóri myndarinnar er Lee Daniels sem síðast sendi frá sér hina vel heppnuðu Precious.
Mest lesið Einn mánuður án áfengis breytti öllu Lífið Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Áskorun Eitt allra krúttlegasta mót ársins Lífið Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Fleiri fréttir Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Sjá meira