Bono, söngvari U2, segist ekki hafa grætt á tá og fingri þegar Facebook fór á hlutabréfamarkað í síðustu viku. Fregnir hermdu að kappinn hefði þénað yfir milljarð dollara, eða hátt í 130 milljarða króna, vegna Facebook en fjárfestingafyrirtæki hans Elevation Partners keypti 2,3% hlutafjár í Facebook árið 2009.
„Þvert á sögusagnir þá er ég enginn milljarðamæringur og er ekki orðinn ríkari en einhver úr Bítlunum. Bítlarnir eru ósnertanlegir og þessar fregnir um að ég sé milljarðamæringur eru brandari,“ sagði hann í viðtali við MSNBC. Hann bætti við að fyrirtækið hans sjái um að fjárfesta fyrir annað fólk en fái þó að sjálfsögðu eitthvað fyrir sinn snúð. „Mér fannst ég ríkur þegar ég var tvítugur og eiginkona mín borgaði reikningana mína. Bara það að vera í hljómsveit hefur verið mikil blessun. Ég fékk áhuga á tækni vegna þess að ég er listamaður.“
Fékk ekki milljarða

Mest lesið

„Þetta kom mér jafnmikið á óvart eins og öðrum“
Tíska og hönnun


Skapandi sumarstarf varð að þætti á laugardagskvöldum á RÚV
Bíó og sjónvarp




Næsti Bond undir þrítugu og þrír efstir á blaði
Bíó og sjónvarp


