Lífið

Jim "Sheldon" Parsons kominn út úr skápnum

Jim Parsons
Jim Parsons mynd/AFP
Bandaríski leikarinn Jim Parsons, sem þekktastur er fyrir túlkun sína á hinum elskulega en óforbetranlega Sheldon Cooper úr sjónvarpsþáttunun The Big Bang Theory, kom út úr skápnum í dag.

Greint frá því þessu í fréttablaðinu The New York Times. Þar var þó lítið gert úr málinu enda fjallaði fréttin um hlutverk sem Parsons tók nýlega við. Hann mun leika baráttumanninn Tommy Boatwright þegar sjálfsævisaga Larry Kramers fer í framleiðslu á næstu mánuðum.

Parsons, sem er 39 ára gamall, hefur aldrei áður rætt kynhneigð sína opinberlega. Aðdáendur hans hafa þó vafalaust tekið eftir því að Parsons þakkar reglulega félaga sínum, Todd Spiewak, þegar hann tekur við verðlaunum.

Parsons og Spiewak hafa verið saman í hartnær áratug.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.