Dramatísk helgi í bíóhúsunum 24. maí 2012 13:00 Zac Efron leikur hermann sem leggur mikið á sig til að finna konu sem hann telur vera happagripinn sinn og hafa bjargað lífi sínu oftar en einu sinni á meðan hann var á vígvellinum.
Gelgjutryllirinn Zac Efron sýnir á sér nýjar hliðar í dramamyndinni The Lucky One sem var frumsýnd í gær. Myndin fjallar um hermann sem er fullviss um að mynd af konu sem hann fann í miðri sprengjuárás sé happagripurinn hans og ástæða þess að hann hafi einn lifað af ýmsar árásir í stríðinu. Þegar hann kemur heim leggst hann í það að finna konuna á myndinni og verða hluti af lífi hennar. Myndin Tyrannosaur segir áhrifamikla sögu af ekklinum Jósef sem er á slæmum stað í lífinu eftir að hafa misst konu sína og þráir að bæta líf sitt. Þegar hann hittir Hönnu virðist allt stefna í rétta átt en þrúgandi leyndarmál hennar gæti sett strik í reikninginn. Þetta er fyrsta myndin sem hinn þekkti breski leikari Paddy Considine skrifar og leikstýrir. Önnur dramamynd sem frumsýnd er um helgina er myndin Applause. Hún segir frá lífi leikkonunnar Thea Barfoed sem reynir að koma lífi sínu á réttan kjöl eftir að hafa lent í ýmsum erfiðleikum og þar á meðal misst forræði yfir börnum sínum. Prímadonnan innra með henni gerir henni þó erfitt fyrir að glíma við hversdagslega tilveru. Það er Paprika Steen sem fer með hlutverk Barfoed. Gamanmyndin Salmon Fishing in the Yemen segir frá vel stæðum arabafursta sem vill koma á fót laxveiðum í miðri eyðimörk. Ewan McGregor og Emily Blunt fara með aðalhlutverk í myndinni. - trs
Mest lesið Einn mánuður án áfengis breytti öllu Lífið Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Áskorun Eitt allra krúttlegasta mót ársins Lífið Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Fleiri fréttir Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Sjá meira