Sport

Árni: Mikilvægustu 20 sekúndur lífs míns

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Mynd/Valli
Vísir kynnir til sögunnar íþróttafólkið sem keppir fyrir hönd þjóðarinnar á Ólympíuleikunum í London. Í dag er komið að Árna Má Árnasyni sem keppir í 50 m skriðsundi.

Um er að ræða stystu vegalengdina í hraðskreiðustu sundgreininni. Íslandsmet Árna er 22,53 sekúndur en það setti hann nú skömmu fyrir Ólympíuleikana.

Þetta er þar að auki eina keppnisgrein Árna á Ólympíuleikunum og því um að gera fyrir okkar mann að nýta þessar sekúndur sem hann fær í lauginni vel.

„Þetta er ansi mikið umstang fyrir rúmar 20 sekúndur," sagði hann og brosti þegar blaðamaður hitti á hann í Ólympíuþorpinu á dögunum.

„Þetta er auðvitað mikill undirbúningur sem liggur að baki og væntingar gerðar til þess að maður standi sig vel. Þetta eru örugglega mikilvægustu 20 sekúndurnar í mínu lífi."

Árni Már keppti einnig í greininni á Ólympíuleikunum í Peking fyrir fjórum árum síðan og náði þá að bæta Íslandsmetið í greininni sem stóð alveg fram að vormánuðum.

„Það er spennandi að vera kominn aftur á Ólympíuleika. Laugin hér er mjög svipuð þeirri í Peking og þorpið að vissu leyti líka. Það er alla vega ekki síðra."

Sem fyrr segir hefur hann verið á miklu skriði í sumar. „Ég hef náð að bæta mig mikið og það væri frábært að ná bætingu aftur. Ég stefni á að synda undir 22,5 sekúndum."

Árni Már Árnason

25 ára úr ÍRB

ÓL-greinar:

2. ágúst: 50 m skriðsund karla




Fleiri fréttir

Sjá meira


×