Fólk byrjað að þekkja salsadans frá salsasósu 28. apríl 2012 16:00 Edda segir kveikjuna að Salsa Iceland hafa verið þá að henni fannst vanta samfélag hérlendis fyrir fólk að hittast og dansa saman.
Salsa Iceland hefur komið salsadansi á kortið á Íslandi. Eigendur Salsa Iceland, ásamt fleirum, standa fyrir dansskemmtun í dag í tilefni af Alþjóðlega dansdeginum á morgun. „Þegar ég byrjaði fyrst að röfla um salsa árið 2003 tengdu flestir það bara við salsasósu. Það hefur þó mikið vatn runnið til sjávar síðan þá og í dag þekkja flestir salsadans,“ segir Edda Blöndal, sjúkraþjálfari, salsafíkill og einn eigenda Salsa Iceland. Edda stofnaði Salsa Iceland eftir að hafa smitast af salsa bakteríunni í karate-keppnisferðalögum erlendis. „Árið 2006 byrjaði þetta fyrir alvöru hjá okkur og við fórum að kenna sjálf,“ segir Edda, en Salsa Iceland er í dag með 16 kennara á sínum snærum og kennir salsa á sex stigum auk annarra latíndansa. Á fimmtudagskvöldum bjóða þau upp á ókeypis salsakvöld með ókeypis prufutíma fyrir byrjendur á Thorvaldsen og þar hittist fólk og dansar saman fram eftir kvöldi. „Það er svo gaman við þetta að það er fólk úr öllum stéttum þjóðfélagsins og á öllum aldri að mæta,“ segir Edda og bætir við að dansinn sé aðgengilegur hverjum sem er. „Fæstir sem koma á námskeið eru einhverjir danssérfræðingar og það er ekki nauðsynlegt að mæta í pörum,“ segir hún. Aðsókn herra hefur aukist mjög að undanförnu og að sögn Eddu er alltaf passað upp á kynjahlutföll á námskeiðunum „Við bjóðum til dæmis herrum að endurtaka námskeið sem þeir hafa tekið, sér að kostnaðarlausu. Þannig hjálpa þeir okkur með kynjahlutföllin og fá jafnframt tækifæri til að æfa sig betur, enda ekki lítið verkefni að læra að stýra þessum íslensku konum,“ segir Edda og hlær. Í dag, laugardag, mun Salsa Iceland standa fyrir dansdegi í stúdíói sínu að Grensásvegi 12a í samstarfi við Háskóladansinn, Tangóævintýrafélagið, Lindy Ravers og Salsa Mafíuna. Dagurinn er haldinn í tilefni Alþjóðlega dansdagsins sem er 29. apríl ár hvert. „Við verðum með dagskrá í gangi allan daginn sem endar svo með hörkuballi um kvöldið,“ segir Edda og bætir við að þátttaka sé fólki að kostnaðarlausu. Allar nánari upplýsingar um daginn og Salsa Iceland má finna á heimasíðu þeirra, www.salsaiceland.is tinnaros@frettabladid.is
Mest lesið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Menning Fleiri fréttir Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Sjá meira