Botnleðja spilar á þremur tónlistarhátíðum í sumar 29. maí 2012 08:00 Rokkararnir í Botnleðju uppi á sviði á minningartónleikum í Kaplakrika í desember síðastliðnum. fréttablaðið/hag ?
Við hlökkum mikið til. Við erum að æfa á fullu og erum að verða þéttir,? segir Haraldur Freyr Gíslason, trommari Botnleðju. Rokkararnir hyggja á kröftuga endurkomu í sumar eftir langt hlé og stíga á svið á þremur af stærstu útihátíðunum. Fyrst spila þeir á Bestu útihátíðinni á Hellu sem verður haldin 5. til 8. júlí, svo á Eistnaflugi á Neskaupsstað helgina á eftir og loks á Þjóðhátíð í Eyjum um verslunarmannahelgina, þar sem hún hefur reyndar áður spilað. Áður hafði verið tilkynnt um endurkomutónleika Botnleðju á Gauki á Stöng 16. júní. Það verða fyrstu tónleikar sveitarinnar síðan hún sneri aftur eftir áralangt hlé á styrktartónleikum í Kaplakrika í desember. Aðspurður segir Halli að engin ný Botnleðjulög verði flutt í sumar. ?Ekki í þessari lotu. Þetta verða bara gömlu góðu slagararnir. En við erum að spila fullt af lögum sem við vorum löngu hættir að spila og við ætlum að taka lög af öllum plötunum.? Hann segir að spilamennskan í sumar hafi verið auðveld ákvörðun, fyrst þeir ákváðu á annað borð að snúa aftur með tónleikunum á Gauknum. Trommarinn lofar því að valda fjölmörgum aðdáendum Botnleðju ekki vonbrigðum í sumar. ?Við lofum því að við gerum okkur ekki að fíflum, það kemur ekki til greina. Botnleðja er þekkt fyrir að vera öflug tónleikasveit og við ætlum að standa undir þeim væntingum.? Hljómsveitin gaf á sínum tíma út fimm plötur og kom sú síðasta, Iceland National Park, út árið 2003. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Einn mánuður án áfengis breytti öllu Lífið Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Áskorun Eitt allra krúttlegasta mót ársins Lífið Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Fleiri fréttir Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Sjá meira