Árni Sveins eins og fluga á vegg hjá Bubba 1. apríl 2012 08:00 Árni Sveinsson kvikmyndagerðamaður hefur nýlokið við heimildamynd um Bubba sem kemur út samhliða nýju plötunni í vor. „
Við Bubbi erum orðnir mestu mátar, hann kallaði mig allavega elskuna sína í morgun,“ segir kvikmyndagerðamaðurinn Árni Sveinsson sem er að leggja lokahönd á heimildamynd um tónlistarmanninn. Heimildamyndin fylgir með nýjustu plötu Bubba sem er væntanleg með vorinu, en þar er fylgst með upptökuferli plötunnar. Árni hefur því fylgt Bubba eftir síðusta þrjár vikurnar. „Ég er búinn að vera eins og fluga á vegg hjá Bubba undanfarið og þetta hefur verið skemmtilegt ferli,“ segir Árni en myndin hefur ekki ennþá fengið nafn. Myndin er tæpur klukkutími á lengd og í henni kemur Mugison fram meðal annarra, en hann og Bubbi syngja saman lagið Þorpið sem er á plötunni. „Ég er mjög ánægður með útkomuna, þetta er alvöru stöff,“ segir Árni. Árni segist ekki vera neinn sérstakur Bubba aðdáandi en hann ber hins vegar mikla virðingu fyrir tónlistarmanninum. „Ég get ekki sagt að ég sé beint aðdáandi en ég kann mjög vel að meta tónlistina hans. Það er einmitt fyndið að segja frá því að platan Sögur af landi er fyrsta platan sem ég fékk í jólagjöf,“ segir hann. „Í myndinni sjáum við aftur sagnamanninn Bubba og ég á von á því að þessi plata verði sú sem aðdáendur Bubba hafa verið hvað mest að bíða eftir. Það má segja að Bubbi sé að snúa aftur til upprunans,“ segir Árni sem beið spenntur eftir símatali frá Bubba sem var að fara að sjá myndina í fyrsta sinn í gær. „Það er vonandi að þetta leggist vel í hann og að við séum enn þá góðir mátar á morgun.“ -áp
Mest lesið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Fleiri fréttir Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Sjá meira