Fer í vont skap í svörtu 4. apríl 2012 10:00 Þorsteinn Blær, förðunarfræðingur og stílisti, vakti athygli ljósmyndara Fashionista.com með litríkum klæðaburði sínum. fréttablaðið/vilhelm
Þorsteinn Blær, stílisti, hefur vakið eftirtekt fyrir litríkan klæðaburð sinn og nú síðast fangaði hann athygli ljósmyndara vefsíðunnar Fashionista.com sem birti mynd og viðtal við stílistann á síðu sinni. Fashionista.com er ein af vinsælli tískuvefsíðum heims og því ætti litríkur klæðnaður Þorsteins að ná augum fjölda fólks. t"ískaÞorsteinn Blær, stílisti, hefur oft vakið eftirtekt fyrir litríkan klæðaburð sinn og nú síðast fangaði hann athygli ljósmyndara vefsíðunnar Fashionista.com sem birti mynd og viðtal við stílistann á síðu sinni. Fashionista.com er ein af vinsælli tískuvefsíðum heims og því ætti litríkur klæðnaður Þorsteins að ná augum fjölda fólks. Á vefsíðunni lýsir Þorsteinn klæðaburði sínum sem brjálæðislegum og einstökum og segist hann hafa gaman af því að klæðast sterkum litum þegar veðrið er grámyglulegt. Inntur eftir því hvort hann eyði miklum tíma í fatapælingar áður en hann fer út úr húsi neitar Þorsteinn því. „Ég er löngu hættur að pæla í hverju ég eigi að klæðast þegar ég fer út, ég gríp bara eitthvað af fataslánni,“ segir Þorsteinn og bætir við að hann sé vanur augngotum frá ókunnugum. „Fólk er gjarnt á að stoppa mig úti á götu og taka myndir, ég held það fylgi því að vera öðruvísi á Íslandi. Ég er löngu orðinn vanur þessu því ég hef verið svona litríkur alveg frá því ég var barn á Selfossi,“ útskýrir hann. Þorsteinn segir tískuáhugann nánast meðfæddan og að sem barn hafi hann harðneitað að klæðast svörtum flíkum. „Þegar ég var lítill máttu sokkarnir mínir ekki einu sinni vera svartir, ég fer í vont skap þegar ég klæðist svörtu. Ég hef haft áhuga á tísku alveg frá því ég man eftir mér og finnst til dæmis mjög gaman að breyta flíkum á ýmsan hátt. Ég kaupi stundum flík bara útaf efninu og breyti kannski kjól í buxur.“ Þorsteinn er menntaður förðunarfræðingur og hefur unnið lengi sem slíkur en undanfarið hefur hann snúið sér í auknum mæli að ljósmyndun og stíliseringu. Hann stefnir á tískutengt nám í nánustu framtíð og gæti vel hugsað sér að stunda fatahönnunarnám við Central Saint Martins í London. „Sá skóli kveikir svolítið í mér og ég væri til í að læra fatahönnun eða ljósmyndun þar,“ segir Þorsteinn að lokum.- sm
Mest lesið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Fleiri fréttir Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Sjá meira