Vann til tvennra verðlauna á Erasmus-hátíð í Portúgal 13. maí 2012 16:00 Hugrún Ösp Lárusdóttir Dunn hlaut tvenn verðlaun fyrir stuttmynd sína sem sýnd var á stuttmyndahátíð í Portúgal.
Hugrún Ösp Lárusdóttir Dunn, nemandi í ljósmyndun, hlaut tvenn verðlaun á Erasmus-stuttmyndahátíðinni í Leiria í Portúgal fyrir stuttmyndina Móðir mín í kví kví. Hugrún Ösp flutti til Bristol árið 2007 og hóf nám í ljósmyndun tveimur árum síðar. Hún segir kennara sinn hafa hvatt sig til að gera eitt skólaverkefnið í öðru fagi en ljósmyndun og stakk upp á stuttmyndagerð. Hugrún ákvað að fara að ráði hans og var útkoman stuttmyndin Móðir mín í kví kví sem byggð er á samnefndri þjóðsögu. „Þetta er frásögn gamallar konur sem rifjar upp ævi sína og útskýrir af hverju hún bar barnið sitt út. Við sjáum hana ganga í átt að staðnum þar sem útburðurinn átti sér stað á meðan hún segir sögu sína. Hún er uppgefin og langar að leggjast þar niður og deyja því hún hefur þurft að búa við þessa sorg alla ævi. Þannig að þetta er ekki beint gleðileg mynd,“ útskýrir Hugrún. Sami kennari stakk síðan upp á því að hún sendi myndina á Erasmus-stuttmyndahátíðina í Portúgal. Keppt var í átta flokkum og var mynd Hugrúnar sýnd í flokknum Heritage, sem á íslensku þýðir arfleifð. Myndin þótti bæði besta myndin í sínum flokki og einnig á hátíðinni allri og kom þessi tvöfaldi sigur Hugrúnu nokkuð á óvart. „Ég hélt fyrst að einhver væri að gera grín að mér þegar mér var tilkynnt um sigurinn í gegnum vefpóst, þetta kom mér algjörlega á óvart,“ segir Hugrún sem hlaut peningaverðlaun og viðurkenningarskjal að launum. Hugrún giftist breskum manni í fyrrasumar og ætlar því að búa áfram í Bristol að útskrift lokinni, en hún útskrifast í júlí með BA í ljósmyndun. Innt eftir því hvað hún ætli að gera að námi loknu segist hún gjarnan vilja færa sig meira yfir í kvikmyndagerð. „Mér finnst mjög gaman í ljósmyndun en ég held ég muni færa mig meira yfir í kvikmyndagerð í framtíðinni. Lokaverkefnið mitt úr skólanum er stuttmynd um Viðfjarðarskottu og er lauslega byggð á Viðfjarðarundrunum eftir Þórberg Þórðarson. Fjölskylda mín er ættuð frá Viðfirði og mér þótti gaman að hafa lokaverkefnið svolítið persónulegt,“ segir hún að lokum. sara@frettabladid.is
Mest lesið Einn mánuður án áfengis breytti öllu Lífið Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Áskorun Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Eitt allra krúttlegasta mót ársins Lífið Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Fleiri fréttir Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Sjá meira