Hinsegin brúðkaup á Íslandi 5. júní 2012 09:30 Kærusturnar Eva María og Birna Hrönn eru farnar að bjóða upp á aðstoð við skipulagningu brúðkaups samkynhneigðra á Íslandi í gegnum fyrirtæki sitt Pink Iceland. Mynd/Alisa Kalyanova „
Það eru komnar bókanir fyrir fjögur brúðkaup núna í sumar og við erum að fá fyrirspurnir lengra fram í tímann, til dæmis um eitt vetrarbrúðkaup í febrúar," segir Eva María Þórarinsdóttir, annar eigandi Pink Iceland, sem býður upp á brúðkaupsþjónustu fyrir samkynhneigða ferðamenn. Ferðaþjónustufyrirtækið Pink Iceland var stofnað af kærustuparinu Evu Maríu og Birnu Hrönn Björnsdóttur í mars árið 2011 og sérhæfir það sig í ferðum fyrir samkynhneigða. Fljótlega fór fyrirtækinu að berast beiðnir um skipulagningu á hinsegin brúðkaupum. „Við ákváðum að anna þeirri eftirspurn og vorum allt í einu orðnar brúðkaupsskipuleggjendur og farnar að hafa áhyggjur af blómaskreytingum," segir Eva María og hlær. Eftirspurnin hefur verið mikil og þær hafa tekið að sér brúðkaup af öllum stærðargráðum. „Við höfum bæði verið með brúðhjónin tvö ein og svo er stærsta brúðkaupið okkar núna í sumar 80 manna," segir Eva María en hún er lærður ferðamálafræðingur og með gráðu í viðburðastjórnun svo hún þekkir þennan bransa. Brúðkaupsgestir eru af öllum stærðum og gerðum og mikið til gagnkynhneigt fólk líka. „Við leggjum mikið upp úr því að hafa hinsegin brag á ferðunum okkar. Til dæmis deilum við ýmsum fróðleik um samfélag hinsegin fólks hérlendis og bendum á staði sem samkynhneigðir gætu haft áhuga á. Að sjálfsögðu eru gagnkynhneigðir þó velkomnir í ferðirnar okkar líka," segir Eva María, en vinsælt hefur verið að gestir fari í ferðir á vegum Pink Iceland í kringum brúðkaupin, jafnvel í boði brúðhjónanna.- trs
Mest lesið Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Stór brjóst eru stór Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Áskorun Fleiri fréttir Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Sjá meira