Retro Stefson með lag í nýrri auglýsingu 19. apríl 2012 18:00 „
Það var mjög gaman að vera á „setti" og kynnast auglýsingageiranum," segir Unnsteinn Manuel Stefánsson, forsprakki Retro Stefson. Nýtt lag með hljómsveitinni sem nefnist Kensho verður frumflutt í kvöld í auglýsingu fyrirtækisins Vodafone. Þar spila Unnsteinn og félagar lagið á snjallsíma og iPad. „Við erum búin að vinna að því í fjögur ár," segir hann um nýja lagið. Það átti upphaflega að vera á fyrstu plötu sveitarinnar en ekki tókst að ljúka við það í tæka tíð og heldur ekki fyrir þá næstu sem kom út fyrir jólin 2010. Þess í stað verður það líkast til á þriðju plötunni sem er væntanleg í lok sumars eða snemma í haust. Aðspurður segir Unnsteinn að vissulega hafi þau þurft að hugsa sig um áður en þau seldu lagið í auglýsinguna, enda hefur sveitin ekki gert svona lagað áður. „En svo eigum við heima á Íslandi þar sem annar hver maður er á gestalista og maður fær aldrei borgað fyrir neitt. Maður þarf líka að eiga fyrir salti í grautinn." Eitt annað stórt fyrirtæki hafði áhuga á að nota lagið í aðra auglýsingu en á endanum hreppti Vodafone hnossið. Spurður hvort tilboðið frá þeim hafi verið gott segir Unnsteinn einfaldlega að það hafi verið fínt. Retro Stefson ætlar að spila á að minnsta kosti tveimur erlendum tónlistarhátíðum á mánuði í sumar. Sveitin spilar á smærri hátíðum en í fyrra en á stærri sviðum og hjálpar þar til útgáfusamningur sem hún gerði við Universal. -fb
Mest lesið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Menning „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Fleiri fréttir Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Sjá meira