Skálmaldardagur haldinn á leikskóla 14. maí 2012 14:00 skálmaldarbörn Börnin á leikskólanum Bárðargili eru miklir aðdáendur Skálmaldar. mynd/maría sigurðardóttir „
Þau eru miklir Skálmaldaraðdáendur," segir María Sigurðardóttir yfirmaður á leikskólanum Bárðargili í Bárðardal í Suður-Þingeyjarsýslu. Sjö krakkar eru á leikskólanum og klæddust þeir allir Skálmaldarbolum á sérstökum Skálmaldardegi sem var haldinn hátíðlegur fyrir skömmu. Krakkarnir hlustuðu á lög með þungarokksveitinni hressu og sungu mest með einu lagi hennar, Kvaðningu. „Við erum með tónlistarþema og þessi dagur var tileinkaður Skálmöld," segir María, sem á enn eftir að sjá hljómsveitina á tónleikum. Sömu sögu má segja um krakkana. „Ein mamman spurði hvort það færi ekki að koma að tónleikum bráðum því það væru ungir aðdáendur sem væru til í að hlusta og horfa." Tengsl leikskólans við Skálmöld eru til staðar því Bárðardalur er í um sjötíu kílómetra fjarlægð frá Húsavík en þaðan koma tveir meðlimir hljómsveitarinnar. Einn er sömuleiðis úr næstu sveit við Bárðardal og afi eins meðlims á heima í Mývatnssveit. Fleiri hljómsveitir hafa fengið sérstakan dag á leikskólanum, eða Ljótu hálfvitarnir, Nýdönsk og Mugison. Í þessari viku er svo röðin komin að Pearl Jam og Metallica. Seinna í maí verður einnig haldin Eurovision-vika í tilefni af úrslitunum í Aserbaídsjan. „Við ætlum að kynna þau fyrir hinum ýmsu lögum og ræða við þau um Eurovision," segir María. -fb
Mest lesið Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Lífið Ræðst framtíð grínmyndarinnar hér? Aumkunarverð endurvinnsla og ferskt framhald Gagnrýni „Við ætlum að hlaupa fyrir hana Birtu okkar“ Lífið Mugison gekk í það heilaga við litla útiathöfn Lífið Stjörnulífið: Ástin, glimmer og ofurkroppar Lífið Fyrstu skrefin tekin á sama stað og símtalið um fæðinguna barst Lífið Ungt fólk setur vínbændur í erfiða stöðu Matur Leifur Andri og Hugrún trúlofuð Lífið Superstore-leikari látinn Lífið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Fleiri fréttir Leifur Andri og Hugrún trúlofuð Fyrstu skrefin tekin á sama stað og símtalið um fæðinguna barst Stjörnulífið: Ástin, glimmer og ofurkroppar „Við ætlum að hlaupa fyrir hana Birtu okkar“ Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Superstore-leikari látinn Mugison gekk í það heilaga við litla útiathöfn Krakkatían: Afmælistónleikar, maraþon og bílpróf Myndaveisla: Samstaða og stolt í algleymingi í Gleðigöngunni Með sex sjúkdóma og ólæknandi mein en lætur ekkert stoppa sig Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Hommar, lesbíur, trans fólk og fleiri sameinast í gleðinni Fréttatía vikunnar: Gleðigangan, hafmeyjustytta og handtaka Myndaveisla: Tröllatrukkur og Rolls Royce á svæðinu þegar hjónin gengu út Bay segir skilið við Smith Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Endar örugglega sem 83 ára drottning í Gleðigöngunni Hver er Endakallinn frá Ibiza? Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju „Magnað innra ferðalag“ að horfast í augu við saklausa barnið í sér Fyrrverandi eiginmaður Kelly Clarkson látinn Íhuga að skrifa bók um kaffihúsin á þúsund kílómetra hjólarúnti McConaughey glutraði niður tækifærinu í Titanic Orðin vön ferðamönnum í garðinum og fagnar komu þeirra Hvers vegna fær Innrásin frá Mars núll í einkunn? Stutt í að uppselt verði í heilt og hálft Þríbætti tíma kærastans í einni stærstu spyrnukeppni Evrópu Eftir þrettán ára nám fékk Saga bílpróf Ástralskur hommasirkus skemmtir börnum og fullorðnum í Tjarnarbíói Húsgögn úr afgöngum og fiskar í gosbrunninum Sjá meira