Anton Sveinn: Ótrúlegt að heyra fagnaðarlætin Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar 28. júlí 2012 09:40 Anton Sveinn McKee Mynd/Valli
Anton Sveinn McKee var fyrsti Íslendingurinn sem keppti á Ólympíuleikunum í Lundúnum en það gerði hann í 400 m fjórsundi í morgun. Hann var þó nokkuð frá sínu besta í greininni en var glaðbeittur í viðtali við blaðamann eftir að hann kom upp úr lauginni. „Ég er fyrst og fremst bara mjög glaður yfir því að hafa keppt á Ólympíuleikum," sagði Anton Sveinn við Vísi eftir keppnina í dag. „Það er efst í mínum huga þessa stundina. Ég er ekkert mjög glaður yfir því að hafa ekki bætt mig en það verður verkefni til að vinna í í framtíðinni." Íslandsmet Antons er 4:23,64 mínútur en hann var tæpri einni og hálfri sekúndu frá því. „Ég var búinn að stefna að því að fara undir fjórar og tuttugu og veit ég ekki hvað klikkaði. Mér fannst þetta vera fínt sund hjá mér og nú verð ég bara að halda áfram að vinna í mínu málum." Hann segir að baksundið sé að skapa sér mestu vandræðin. „Ég er ekki nógu góður í baksundinu og það er að halda mér aftur í greininni. Ég þarf að taka það í gegn á næsta tímabili. En ég er nokkuð nýr í þessari grein og ég er mjög sáttur við niðurstöðuna - sérstaklega þar sem ég veit að ég á mikið inni." Bradley Ally frá Barbados bar sigur úr býtum í riðlinum og var um fjórum sekúndum á undan Antoni, sem átti þó betri skráðan tíma. „Á Ólympíuleikum ætla allir að standa sig vel og því skiptir það í raun ekki máli á hvaða tíma menn eru skráðir inn. Ég hefði svo sem viljað halda betur í hann og veitt honum meiri samkeppni en ég gaf allt mitt í þetta - ég gat ekki gert meira." Hann neitar því ekki að það hafi verið afar sérstök stund fyrir sig að vera kynntur til leiks. „Það var ótrúlegt að heyra fagnaðarlætin þegar maður labbaði inn. Ég er ekki vanur þessu. Þetta var líka fyrsti riðillinn í fyrstu greininni sem var mjög skemmtilegt." „En nú er þetta bara búið og ég ætla ekki að svekkja mig á þessu. Ég er fyrst og fremst bara mjög glaður með að vera hér og nú á ég aðalgreinina - 1500 m skriðsund - eftir. Nú er hrollurinn kominn úr manni og ekkert sem getur komið lengur á óvart."
Tengdar fréttir Anton Sveinn: Síðasti maðurinn upp úr lauginni Vísir kynnir til sögunnar íslenska íþróttafólkið sem keppir á Ólympíuleikunum í Lundúnum. Anton Sveinn McKee sundmaður er sá fyrsti sem keppir á leikunum nú. 28. júlí 2012 06:00 Anton Sveinn fyrstur til að keppa í London - nokkuð frá sínu besta Anton Sveinn McKee var fyrsti Íslendingurinn til að keppa á Ólympíuleikunum í London í morgun þegar hann stakk sér til sunds í 400 metra fjórsundi. 28. júlí 2012 09:19 Mest lesið Sagði bíl Red Bull vera algjörlega óökuhæfan Formúla 1 Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Körfubolti Sextán manns í fullu starfi við að þjónusta Ronaldo Fótbolti Senda konurnar í Evrópukeppni en ekki karlana Handbolti Þrenna á föstudagskvöldi og háskólagráða á laugardegi Íslenski boltinn Stelpurnar stungu sér til sunds í vatninu Fótbolti Lenti ofan á öðrum bíl í Formúlu 2 Formúla 1 Stelpurnar okkar mættar í paradísina Fótbolti Útskrifuð af sjúkrahúsinu og gæti verið með á EM Fótbolti Englendingar Evrópumeistarar eftir framlengdan leik Fótbolti Fleiri fréttir Færeyingar unnu bronsið á HM U21 í handbolta Í beinni: Vestri - ÍA | Breyttir tímar með Lárusi Orra? Í beinni: Fram - ÍBV | Eyjamenn í Grafarholti Sextán manns í fullu starfi við að þjónusta Ronaldo Norris vann í Austurríki og minnkaði forskot liðsfélagans Hverju breytir Lárus Orri hjá Skagaliðinu? Senda konurnar í Evrópukeppni en ekki karlana Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Leikmaðurinn sem Liverpool ætlar að selja í sumar valinn bestur á EM Setti heimsmet á Íslandsmótinu í hestaíþróttum Stelpurnar stungu sér til sunds í vatninu Lenti ofan á öðrum bíl í Formúlu 2 Útskrifuð af sjúkrahúsinu og gæti verið með á EM „Mér finnst þetta vera brandari“ Fyrstu peningaverðlaunin á ferlinum Þrenna á föstudagskvöldi og háskólagráða á laugardegi „Erfiðasti tíminn í mínu lífi“ Stelpurnar okkar mættar í paradísina Chelsea áfram eftir tveggja klukkutíma töf og framlengingu Bonny til Inter Sagði bíl Red Bull vera algjörlega óökuhæfan Dagskráin í dag: Besta deildin og Formúla 1 Einhenta undrið ekki í NBA Leikur Chelsea og Benfica blásinn af Englendingar Evrópumeistarar eftir framlengdan leik Penninn á lofti í Keflavík FH-ingar flytja Kaplakrika í Laugardalinn Palmeiras fyrsta liðið í átta liða úrslit Pogba orðinn leikmaður AS Monaco Norris á ráspól á morgun með yfirburðum Sjá meira
Anton Sveinn: Síðasti maðurinn upp úr lauginni Vísir kynnir til sögunnar íslenska íþróttafólkið sem keppir á Ólympíuleikunum í Lundúnum. Anton Sveinn McKee sundmaður er sá fyrsti sem keppir á leikunum nú. 28. júlí 2012 06:00
Anton Sveinn fyrstur til að keppa í London - nokkuð frá sínu besta Anton Sveinn McKee var fyrsti Íslendingurinn til að keppa á Ólympíuleikunum í London í morgun þegar hann stakk sér til sunds í 400 metra fjórsundi. 28. júlí 2012 09:19