Juventus fékk góð tíðindi í dag þegar í ljós kom að markvörðurinn Gianluigi Buffon er búinn að jafna sig af meiðslum og getur spilað með liðinu gegn Nordsjælland í Meistaradeildinni á morgun.
Buffon meiddist í landsleikjahléinu og gat ekki spilað um helgina er Juve lagði Napoli, 2-0.
Juve er búið að fá tvö stig úr fyrstu tveimur leikjum sínum og þarf sárlega á sigri að halda gegn danska liðinu sem hefur ekki enn fengið stig.
Buffon er orðinn 34 ára gamall en gefur lítið eftir og er enn á meðal bestu markvarða heims.
Buffon getur spilað gegn Nordsjælland

Mest lesið

Sjáðu slagsmálin eftir jöfnunarmark Blika
Íslenski boltinn






Fóru yfir lætin í Kópavogi: „Höskuldur tryllist strax frá byrjun“
Íslenski boltinn


