Reyndi fyrst fyrir sér í karókí 31. mars 2012 16:00 Þormóður Dagsson skipti trommuleik út fyrir söng. Hann er söngvari hljómsveitarinnar Tilbury en fyrsta lag sveitarinnar hefur vakið mikla lukku. fréttablaðið/anton brink
Lagið Tenderloin með hljómsveitinni Tilbury hefur hlotið mikið lof meðal íslenskra tónlistaráhugamanna sem segja frumraun sveitarinnar lofa góðu um framhaldið. Söngvari Tilbury er trommarinn Þormóður Dagsson sem lék áður með hljómsveitunum Skakkamanage, Jeff Who? og Hudson Wayne. „Þetta byrjaði vorið 2010, þá hafði ég sagt mig úr öllum hljómsveitunum sem ég spilaði með og farinn að stunda meistaranám. Ég varð þó eitthvað eirðarlaus og samdi nokkur lög fyrir sólóverkefni mitt, Formann Dagsbrúnar. Þegar ég ákvað loks að taka upp lögin vantaði mig hljóðfæraleikara með mér og þá fór þetta fyrst á skrið,“ útskýrir Þormóður. sem fékk til liðs við sig þá Kristinn Evertsson, Arnar Eldjárn, Guðmund Óskar og Magnús Tryggvason Elíasen og úr varð hljómsveitin Tilbury. Spurður út í hljómsveitarnafnið segir Þormóður það eiga lítið skylt við samnefnda borg í Englandi heldur vera vísun í samnefnda smásögu eftir Þórarin Eldjárn og stuttmynd að sama nafni í leikstjórn Viðars Víkingssonar. Þetta er í fyrsta sinn sem Þormóður reynir fyrir sér sem söngvari en söngkunnátta hans hefur hingað til helst einskorðast við karókí. „Ég er mikill áhugamaður um karókí og hef stundað það grimmt síðustu ár. Ég söng reyndar mikið með þegar ég spilaði á trommur og varð oft hás eftir tónleika, þannig kannski var þetta eðlileg þróun.“ Þormóður viðurkennir þó að það hafi verið skrítin tilfinning að stíga í fyrsta sinn fram á svið sem söngvari hljómsveitar í stað þess að vera á bak við trommusettið. „Ég var alltaf frekar öruggur með mig á bak við trommusettið, þess vegna er þetta skemmtileg áskorun fyrir mig,“ segir hann að lokum. Fyrsta plata Tilbury, Exorcise, kemur út á vegum Record Records þann 7. maí. - smfréttablaðið/anton
Mest lesið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið Fleiri fréttir Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum Sjá meira