Vilja stimpla sig inn með stæl 4. maí 2012 16:00 Óli Geir er í óða önn að skipuleggja tónlistarhátíðina Keflavík Music Festival. fréttablaðið/anton „
Þótt það séu mörg stór nöfn komin þá eiga mörg þekkt nöfn eftir að bætast við," segir Ólafur Geir Jónsson, skemmtanahaldari, eða Óli Geir. Hann skipuleggur tónlistarhátíðina Keflavík Music Festival ásamt vini sínum Pálma Þór Erlingssyni. Hún fer fram í miðbæ Reykjanesbæjar dagana 7. til 10. júní. Fram koma eitt hundrað flytjendur og spila þeir á helstu skemmtistöðum bæjarins. Þegar hafa verið bókaðir fimmtán flytjendur, þar á meðal Dikta, Valdimar, Raggi Bjarna, Bjartmar Guðlaugsson, Retro Stefson, Sykur, Jón Jónsson, Sólstafir og Retrobot. Verslanir, veitingahús og bæjarfélagið verða með í stemningunni þar sem fjölbreytileikinn ræður ríkjum. Þetta er í fyrsta skiptið sem blásið er til hátíðarinnar og vonir standa til hún verði árlegur viðburður í Bítlabænum. „Það er gaman að sjá hversu hversu vel allir taka í þetta," segir Óli Geir. Hann og Pálmi Þór höfðu gengið með þá hugmynd í maganum í eitt til tvö ár að halda svona hátíð. „Maður sér Aldrei fór ég suður, Airwaves og svo allar þessar sumarhátíðir. Það er engin sumarhátíð í Reykjanesbæ, bara Ljósanótt sem er á haustin. Þar sem þetta er einn stærsti tónlistarbær landsins fannst okkur vel við hæfi að blása til alvöru tónlistarhátíðar." Keflavík Music Festival verður næst stærsta tónlistarhátíð landsins á eftir Airwaves. „Við viljum stimpla okkur inn með stæl og einbeita okkur að því að gera hlutina vel." -fb
Mest lesið Gamli er (ekki) alveg með'etta Gagnrýni Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Lífið Bieber gefur út óvænta plötu Lífið Upprunalega Birkin taskan seld á rúman milljarð Tíska og hönnun Eftirlætis náttúruperlur Ásu Steinars Lífið Pfúff: Fjölskyldufrí og systkinin endalaust að rífast Áskorun Ragga Holm og Elma trúlofaðar Lífið Borgin býður í tívolíveislu Tónlist Þúsundir mótmæla: Hætt við tónlistarhátíð þar sem Ye átti að koma fram Lífið Ný tónlistarhátíð í síldarverksmiðjunni á Hjalteyri Lífið Fleiri fréttir Ætlar að ná styrk í fingurna til að geta greitt dótturinni Ragga Holm og Elma trúlofaðar Eftirlætis náttúruperlur Ásu Steinars Bieber gefur út óvænta plötu Þúsundir mótmæla: Hætt við tónlistarhátíð þar sem Ye átti að koma fram Ný tónlistarhátíð í síldarverksmiðjunni á Hjalteyri Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Áhrifarík ræða Begga Ólafs: „Hvað myndi Batman gera?“ Besta sætið ekki nógu spennandi fyrir Hugh Grant Einhver áhætta fylgi öllum atriðum í sirkusnum Stefán Karl hefði orðið fimmtugur í dag Markús nýr safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Próteinbollur að hætti Gumma kíró Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Hanna Katrín heiðursgrillari á Kótelettunni „Pabbi minn vakir yfir mér“ Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Skákborðsréttir nýjasta matartískan Tímalausar og fallegar brúðargjafir Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Sjá meira