Sport

Jakob var langt frá sínu besta í 200 metra bringusundinu

Jakob Jóhann Sveinsson hefur ekki náð sér á strik á ÓL í London.
Jakob Jóhann Sveinsson hefur ekki náð sér á strik á ÓL í London. Valli
Jakob Jóhann Sveinsson sundmaður úr Ægi var langt frá sínu besta í 200 metra bringusundi á Ólympíuleikunum í London í morgun. Hann kom síðastur í mark í öðrum riðli á 2:16,72 mínútum. Íslandsmet Jakobs er 2:12,39 mínútur sem hann setti árið 2009 en besti tími hans fyrir leikana á þessu ári var 2:13,84 mínútur.

Jakob var um 6 sekúndum á eftir fyrsta manni í öðrum riðli en Scott Dickens frá Kanada synti á 2:10,95 mínútum. Hann endaði í 36. sæti í 100 metra bringusundinu sem fram fór um helgina þar sem hann var 1,3 sekúndum frá Íslandsmeti sínu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×