Valtari er engin popp-plata BBI skrifar 7. júní 2012 14:30
Nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari, er engin popp-plata, segir Georg Hólm, bassaleikari sveitarinnar. „Ég held að maður átti sig ekkert á henni á einum degi eða tveimur," segir hann og telur að menn þurfi að hlusta á hana nokkuð oft til að geta dæmt hana af sanngirni. Platan hefur fengið glimrandi viðtökur. Dómar plötugagnrýnenda eru þó nokkuð dræmari en fyrri breiðskífur sveitarinnar hafa fengið. „Ef þetta eru einhverjir poppgagnrýnendur þá getur vel verið að þeir tengi bara ekki við plötuna," segir Georg og flissar. „En mér finnst hún mjög góð." Platan skaust strax hátt á sölulistum víða um heim. Georg Hólm, bassaleikari, er að vonum ánægður með þennan árangur en gerir þó lítið úr velgengninni. „Það er í raun lítið að marka tölur á svona listum held ég," segir hann og vísar til þess að umræddir listar taka bara mið af plötusölu á einhverju mjög afmörkuðu tímabili. Því segja svona tölur ekki alla söguna. „Við höfum alveg selt fleiri eintök. Núna þessa vikuna er kannski bara lítið að gera í plötusölu," segir Georg. Honum finnst þó gaman að sjá plötuna fara svona hátt. „Svolítið merkilegt að ambient-plata á íslensku sé í 1. sæti á írskum sölulistum," sagði Orri Páll Dýrason þegar hann heyrði af sölutölunum. Hljómsveitin hefur látið gera myndbönd við öll lög plötunnar. Ákveðið var að velja listamenn, biðja þá að gera það sem þeim dettur í hug þegar þeir hlusta á tónlistina og gefa þeim svo alveg lausan tauminn. Hljómsveitin er því jafnspennt að sjá útkomuna og almenningur. Tvö myndbönd eru þegar komin út. „Þau eru bæði alveg æðisleg. Auðvitað mjög ólík. Eitthvað sem maður bjóst engan veginn við," segir Georg. Myndböndin munu birtast á tveggja vikna fresti og því er von á næsta myndbandi á mánudaginn eftir tæpar tvær vikur. Nýjasta myndbandið sem Inga Birgisdóttir, systir söngvarans Jónsa, gerði má skoða hér að ofan.
Mest lesið Rassaumhirða karla í sókn Lífið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Fleiri fréttir Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Sjá meira