Gerrard og Rooney hafa oftast fengið verðlaunin sem Gylfi fékk Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. apríl 2012 14:15 Gylfi Þór Sigurðsson Mynd/AFP
Steven Gerrard hjá Liverpool og Wayne Rooney hjá Manchester United hafa oftast verið kosnir leikmenn mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni eða fimm sinnum hvor. Gylfi Þór Sigurðsson varð í dag fyrsti íslenski leikmaðurinn í sögunni til að vera kosinn besti leikmaður mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni en enginn þótti standa sig betur í mars en Gylfi. Átta leikmenn hafa hlotið þessi verðlaun fjórum sinnum eða oftar en þeir sem hafa vorið kosnir fjórum sinnum eru: Dennis Bergkamp, Thierry Henry, Frank Lampard, Cristiano Ronaldo, Paul Scholes og Alan Shearer. Það vekur athygli að Ryan Giggs hefur aðeins tvisvar fengið þessi verðlaun þrátt fyrir að spila stórt hlutverk í ensku úrvalsdeildinni frá því að hún var stofnuð. Giggs var kosinn bestur í ágúst 2006 og í febrúar 2009. Það hafa fjórir Norðurlandabúar fengið þessi verðlaun áður, Svíarnir Freddie Ljungberg (apríl 2002) og Johan Elmander (nóvember 2010) og Finnarnir Sami Hyypiä (nóvember 1999) og Mikael Forssell (mars 2004). Gylfi Þór er áttundi leikmaðurinn sem hlýtur þessi verðlaun í vetur en enginn leikmaður hjá velsku liði hefur áður verið kosinn bestur í einum mánuði í ensku úrvalsdeildinni. Ísland er 30. þjóðin sem eignast besta leikmann mánaðarins en Englendingur hefur 80. sinnum orðið fyrir valinu og þá hafa Frakkar fengið þessi verðlaun fimmtán sinnum.
Mest lesið Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Körfubolti Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Enski boltinn Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Handbolti Sara Björk snýr heim í Hauka Íslenski boltinn Fleiri fréttir Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Sjá meira