Innlent

Ólíðandi að upplýsingagjöf einkarekinna læknastofa sé óskýr

Erla Hlynsdóttir skrifar
Guðbjartur Hannesson.
Guðbjartur Hannesson.
Velferðarráðherra segir ólíðandi að ekki sé skýrt hvaða upplýsingar einkareknar læknastofur gefi heilbrigðisyfirvöldum. Í framhaldi af þeim álitaefnum sem upp komu í tengslum við PIP-sílíkonpúðana, hefur ráðherra skipað starfshóp til að fara yfir einkarekstur í heilbrigðisgeiranum.

Meðal álitaefna er hvort lýtalæknum ber skylda til að veita landlækni upplýsingar um þá sem hafa fengið sílíkonígræðslur. Lýtalæknar neituðu og vísuðu málinu til Persónuverndar.

„Í framhaldi af þessari um ræðu með PIP púðana þá var ákveðið að stofna ráðgjafahóp til að fara í saumana á faglegum þáttum í starfsemi einkarekinna læknastofa og gera tillögur til úrbóta eftir því sem að þörf krefur. Þá er náttúrulega verið að horfa sérstaklega til þess að heilbrigðisyfirvöld í landinu hafa eftirlitskyldu, bæði með gæðum, þjónustu og framkvæmd," segir Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra.

Telurðu að eftirlitinu hafi þarna verið ábótavant?

„Það er uppi ágreiningur um það meðal annars hvaða upplýsingaskylda er á milli þessara aðila, hver er réttur landlæknis til að kalla eftir upplýsingum, og fleira í þeim dúr og það er náttúrulega algjörlega óviðunandi að það sé ekki skýrt að sá aðili sem á að hafa eftirlit geti kallað eftir gögnum, svo eitthvað sé nefnt."

Þá þarf að skoða fleiri þætti, svo sem hvort greiðsluþátttaka ríkisins hafi áhrif á hvaða upplýsingar einkareknar stofur veita heilbrigðisyfirvöldum.

„Ég held að það sé mjög mikilvægt að fara yfir regluverkið og skýra það þannig að það velkist enginn í vafa um hver sé réttur Landlæknis sem eftirlitsaðila fyrir hönd heilbrigðisyfirvalda. og hverjar skyldur læknastofanna séu," segir Guðbjartur.

Í hópnum sitja Magnús Pétursson ríkissáttasemjari sem þar er verkefnastjóri, Garðar Garðarsson lögmaður, Guðmundur Sigurðsson lagaprófessor og Kristín Kalmarsdóttir endurskoðandi.

Þau hafa þegar hist þrisvar og átt einn fund með ráðherra. Reiknað er með að hópurinn skili niðurstöðum sínum í maí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×