Styrkja UN Women 25. maí 2012 10:15 Konur Þormóður Dagsson, söngvari Tilbury, er á meðal þeirra sem munu gefa vinnu sína til styrktar UN Women. fréttablaðið/anton brink
Tónleikar til styrktar UN Women fara fram á Gauki á Stöng í kvöld. Það er vefverslunin Gogoyoko sem skipuleggur tónleikana, sem eru þeir fyrstu í röð tónleika sem haldnir verða ársfjórðungslega til styrktar góðu málefni. Hljómsveitirnar Mammút, Tilbury, Snorri Helgason, Elín Ey, Muck og Christopher Wyatt-Scott koma fram á tónleikunum í kvöld og segist Inga Dóra Pétursdóttir, framkvæmdastjóri hjá UN Women, þakklát fyrir stuðninginn. „Við erum mjög þakklát Gogoyoko, tónleikastaðnum og tónlistarfólkinu fyrir stuðninginn og þá vinnu sem þarf til að hrinda tónleikum sem þessum í framkvæmd." UN Women eru samtök innan Sameinuðu þjóðanna sem vinna að jafnrétti kynjanna og eflingu kvenna. Samtökin hafa þau markmið að stöðva kynbundið ofbeldi og bæta aðstöðu kvenna um heim allan og að sögn Ingu Dóru hefur stuðningur við UN Women á Íslandi aukist verulega eftir kreppu. „Sú tilhneiging fólks að draga saman fjárútlát til góðgerðamála þegar kreppir að hefur ekki átt sér stað hér. Hjá okkur hefur stuðningur aukist töluvert eftir kreppu og við gátum því aukið framlag okkar um 140 prósent og okkur þykir ótrúlega vænt um það," segir Inga Dóra sem hyggst mæta á tónleikana í kvöld ásamt öðrum starfsmönnum UN Women. Tónleikarnir hefjast klukkan 22.00 og er miðaverð 1.000 krónur.-sm
Mest lesið Listamaðurinn sem gleymdist gjörsamlega Menning Dekurbossinn Hjalti: „Mömmur eru einfaldlega bestar og mín var ein sú allra besta“ Áskorun Brúnkukrems- og karókíkvöld á dagskrá kvenfanga Lífið Af hverju er hvítasunnan haldin hátíðleg? Lífið Þjóðhátíð um raunveruleikaþátt Brynjars: „Það er ekkert í boði“ Lífið Stálheppinn viðskiptavinur N1 vann frítt flug í heilt ár með PLAY Lífið samstarf „Ekkert gengið að casha út á pabba“ Menning „Ertu kannski Íslendingur?“ Lífið Myrkur Games birta fyrstu stiklu Echoes of the End Leikjavísir Krakkatían: Aldur, tími og Greta Thunberg Lífið Fleiri fréttir Af hverju er hvítasunnan haldin hátíðleg? „Ertu kannski Íslendingur?“ Brúnkukrems- og karókíkvöld á dagskrá kvenfanga Krakkatían: Aldur, tími og Greta Thunberg Söfnuðu milljón krónum fyrir ungt fólk með krabbamein Fékk sér Stöð 2 húðflúr í beinni útsendingu Vann gullverðlaun fyrir sykurblómaskreytingu Vala Kristín og Hilmir Snær búin að eiga Laufey Lín og Barbra Streisand leiða saman hesta sína Stuð og stemning á „árshátíð íslenskra þungarokkara“ í Stykkishólmi Þjóðhátíð um raunveruleikaþátt Brynjars: „Það er ekkert í boði“ Fréttatía vikunnar: Trump, Parkinson og fótbolti Hélt við konu besta vinar síns Ríkissáttasemjari selur glæsihús undir dönskum áhrifum Selur íbúð með náttúruparadís í bakgarðinum Garðar Gunnlaugs og Fanney Sandra flytja á Selfoss Mátti eiginlega ekki hósta því þá myndi hann kremja hann Harry Potter leikari tekur aftur við hlutverki sínu Brynjar skiptir Aroni út Ævintýralegur sumarfögnuður í Haukadal Svona hljómar Himinn og jörð í flutningi Svölu Romeo Beckham og Kim Turnbull sögð hætt saman Endanlega búið spil hjá Johnson og Martin Hraustustu hjón Garðabæjar selja glæsihýsi Kveða orðróminn í kútinn: „Það eru engar deilur“ Endurfrumsýning Brúðubílsins: „Lilli er eiginlega bróðir minn“ Opinberar nákvæmar upplýsingar um brjóstaaðgerðina Geðbrigði ríður á vaðið í tónleikaröð á Dillon Í sjokki að sonurinn hafi verið á typpinu Vanvirkar fjölskyldur og hlutverkin sem skilja eftir sár Sjá meira