Níddist á telpu og myndaði athæfið 28. júní 2011 07:00 Mikið magn mynda fannst í gögnum mannsins, þar á meðal barnaníðsmyndir sem hann hafði sótt á netið.
Karlmaður á fimmtugsaldri, búsettur í Vestmannaeyjum, situr nú í gæsluvarðhaldi vegna rökstudds gruns að hann hafði níðst kynferðislega á stúlkubarni svo mánuðum skipti. Athæfið átti sér stað síðari hluta árs 2009 og fyrri hluta ársins 2010. Í fórum hans fannst fjöldi ljósmynda og hreyfimynda sem hann hafði meðal annars tekið af sér og barninu. Telpan var átta og níu ára þegar ofbeldið stóð yfir. Einnig fannst mikið magn myndefnis sem hann hafði aflað sér á netinu. Karl Gauti Hjaltason, sýslumaður í Vestmannaeyjum, staðfesti að alvarlegt kynferðisbrotamál hafi verið til rannsóknar í allan vetur í umdæmi hans. Hann kvaðst ekki geta tjáð sig nánar um málið, þar sem það væri mjög viðkvæmt. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins bjuggu móðir litlu stúlkunnar og maðurinn saman til þess tíma er ódæðið komst upp. Grunur vaknaði um afbrigðilega hegðun hans þegar vinkona stjúpdóttur hans fékk að gista hjá henni. Hún sagði frá því að maðurinn hefði káfað á sér meðan hún var sofandi. Í kjölfarið, vorið 2010, komst upp að hann hafði ítrekað misnotað stjúpdóttur sína gróflega. Stúlkurnar fóru í viðtöl í Barnahúsi og stjúpdóttirin þurfti mörg viðtöl og umtalsverða aðstoð áður en hún hafði náð sér nægilega mikið til að geta sagt lögreglu frá því ofbeldi sem hún hafði verið beitt. Gögn sem fundust hjá manninum voru rannsökuð og lágu niðurstöður fyrir síðastliðið haust. Geðrannsókn var gerð á manninum og reyndist hann sakhæfur. Þriðja kæran barst síðan á hendur manninum þar sem ung kona kærði hann fyrir að hafa áreitt sig kynferðislega fyrir átta árum, þegar hún var ung stúlka. Maðurinn sem um ræðir var í Héraðsdómi Suðurlands síðastliðinn laugardag úrskurðaður í gæsluvarðhald í einn mánuð á grundvelli almannahagsmuna. Í gæsluvarðhaldskröfu Ríkissaksóknara er hann sakaður um nauðgun, ásamt fleiri brotum. Hann hefur kært úrskurðinn til Hæstaréttar. jss@frettabladid.is
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn sprunginn í Suðurnesjabæ Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Sjá meira