Nefbraut stúlku og hrinti annarri - man ekkert vegna athyglisbrests 19. apríl 2011 20:00 Maðurinn var dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness.
Rúmlega tvítugur maður var dæmdur fyrir líkamsárás gegn tveimur stúlkum með ársmillibili í dag. Maðurinn nefbraut aðra stúlkuna í september árið 2009. Atvikið átti sér stað í Bankastræti í Reykjavík en hann skallaði hana að tilefnislausu. Sjálfur sagði hann fyrir dómi að hann mundi illa eftir atvikinu þar sem hann væri með athyglisbrest og gleymi því sem fyrir hann ber auðveldlega. Seinni árásin átti sér stað í júlí árið 2010. Þá hrinti maðurinn stúlku í Hverfisgötuna með þeim afleiðingum að hún hlaut yfirborðsáverka á handlegg, tognun í olnboga og í mjóbaki. Í niðurstöðu dómsins segir meðal annars: „Þá er einnig til þess að líta að ákærði hefur lýst því að vegna athyglisbrests sem hann er haldinn þá eigi hann til að gera hluti sem hann gleymi strax að hafa gert auk þess sem neitun hans á sekt er fjarri því að vera eindregin. Í þessu ljósi telur dómari að ákæruvaldinu hafi tekist sönnun á sekt ákærða og verður hann því sakfelldur fyrir það sem hann er sakaður um í ákæru." Maðurinn hefur nokkrum sinnum áður gerst brotlegur við hegningarlög. Því var hann dæmdur í níu mánaða fangelsi, en fresta skal fullnustu sjö mánaða refsingarinnar og skal sá hluti hennar falla niður að liðnum þremur árum frá birtingu dómsins, haldi maðurinn almennt skilorð.
Mest lesið Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Innlent Hættir að fjármagna þróun mRNA bóluefna Erlent Hvar á að grípa niður í fækkun innflytjenda? Innlent Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Innlent Blóðbankinn á leið í Kringluna Innlent Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Innlent Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Viðskipti innlent Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Erlent Nokkuð um hávaðaútköll Innlent Fleiri fréttir Hvar á að grípa niður í fækkun innflytjenda? Blóðbankinn á leið í Kringluna Nokkuð um hávaðaútköll Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Til skoðunar að hafa mannskap við vöktun í Reynisfjöru Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Ráðstafanir í Reynisfjöru, tollar og lax á sjaldséðum slóðum Boðar fund um tolla Trumps og ESB Rauða ljósið mun blikka fyrr Enn má búast við gosmóðu þó eldgosinu sé lokið í bili Flutti lítra af kókaínvökva til landsins gegn greiðslu „Samstaða skapar samfélag“ er þema Hinsegin daga Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Allt bendir til þess að eldgosinu sé lokið Vörubifreið ekið á vegfarandann Útlendingamálin, Reynisfjara og Hinsegin dagar Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Mjög lítil virkni en mallar enn Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Sjá meira