Rýrir útivistargildi svæðisins við Skálafell 2. júní 2011 06:00 Leggja á tvær rafmagnslínur milli Hellisheiðarvirkjunar og Þorlákshafnar. Fréttablaðið/óká
Lagning rafmagnslínu milli Hellisheiðarvirkjunar og Sandskeiðs, sem kölluð er Þorlákshafnarlína 3, mun hafa veruleg neikvæð umhverfisáhrif að mati Skipulagsstofnunar. Landsnet stefnir að því að leggja tvær línur frá Hellisheiðarvirkjun til Þorlákshafnar. Línurnar eru kallaðar Þorlákshafnarlínur 2 og 3, og eiga að sjá orkufrekum iðnaði á svæði vestan Þorlákshafnar fyrir orku. Skipulagsstofnun gerir ekki miklar athugasemdir við línu 2, þar sem hún á að liggja um svæði sem þegar hefur verið raskað. Lína 3 á hins vegar að liggja frá tengivirki Orkuveitu Reykjavíkur á Orrustuhól á Hellisheiði, öðru hvoru megin við Skálafell og að Sandfelli við Þorlákshöfn, um land sem ekki hefur verið raskað. Verði línan lögð verður veruleg röskun á stærstu landslagsheildunum á Hengils- og Hellisheiðarsvæðinu sem enn eru ósnortnar vega sjónrænna áhrifa, að mati Skipulagsstofnunar. Í áliti stofnunarinnar kemur fram að með auknu raski á Hengilssvæðinu hafi verndargildi ósnortinna svæða farið vaxandi. „Skipulagsstofnun telur því ótvírætt að lagning Þorlákshafnarlínu 3 muni hafa verulega neikvæð áhrif á landslag og muni rýra talsvert útivistargildi svæðisins í kringum Skálafell sem Sveitarfélagið Ölfus hefur skilgreint sem hverfisverndarsvæði vegna útivistar,“ segir í álitinu. Þar segir jafnframt að Landsnet hafi ekki fært rök fyrir því að línurnar geti ekki legið samhliða eftir leið 2 á stórum kafla, sem muni hafa mun minni umhverfisáhrif.- bj
Mest lesið Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Erlent „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Innlent Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Erlent „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Innlent Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Erlent Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Innlent Fleiri fréttir Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Grænlandstollar vonbrigði og verðbólga spillir kjarasamningum Stöðugleikasamningarnir gætu sprungið strax í haust Heimsmálin, Grænland, menntun og fjölmiðlun á Sprengisandi Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Ísland standi með Grænlandi og Danmörku Vonar að skólarnir verði frjálsir frá símum í haust Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Líkir kærunni við „faglega aftöku“ „Vegferð ákæruvaldsins til skammar“ Menntamálaráðherra tekur yfir hjúkrunarheimilin Fjögur handtekin á Akureyri grunuð um innbrot Sjá meira