Þurfum að vanda betur orð og athafnir 4. maí 2011 05:00 Gengið var til guðsþjónustu í Dómkirkjunni klukkan sex í gær áður en prestastefna 2011 var formlega sett í hátíðarsal Háskóla Íslands um kvöldið. FRéttablaðið/Valli „
Sú mikla skerðing sóknargjalda og framlaga sem þjóðkirkjan hefur þurft að mæta frá hruni er farin að hafa veruleg áhrif á þjónustu kirkjunnar um allt land. Það er mikið áhyggjuefni,“ sagði séra Karl Sigurbjörnsson biskup í gærkvöld í setningarræðu á prestastefnu 2011. Karl sagði sóknargjöld hafa verið skert um tuttugu prósent frá bankahruninu. Við bætist fækkun gjaldenda sem orðin sé tilfinnanleg í sumum sóknum. „Vegna hagræðingarkröfu ríkisins hefur kirkjan auk þess þurft að sæta umtalsverðri skerðingu á lögbundnum og samningsbundnum framlögum. Laun presta voru lækkuð að meðaltali um sex prósent árið 2009,“ sagði biskup og kvað erfitt að sjá fyrir sér að lengra yrði gengið í niðurskurði hjá þjóðkirkjunni. „Ef svo fer sem horfir þurfum við á næsta ári að mæta niðurskurði sem nemur á þriðja hundrað milljónum króna. Það heldur sannarlega fyrir mér vöku.“ Þá sagði séra Karl að fækkun sóknarbarna þjóðkirkjunnar ylli honum líka áhyggjum. Margir spyrðu hvers vegna þeir ættu að tilheyra kirkjunni. „Því þurfum við að svara. Það verður ekki hvað síst best gert með því að við vöndum enn meir öll okkar orð og athafnir og gerum enn betur það sem við gerum best,“ sagði biskup við gesti á prestastefnunni.- gar
Mest lesið Bandaríkjamenn gera loftárásir á Íran Erlent Átta látnir hið minnsta eftir að kviknaði í loftbelg Erlent Ísraelar bíði ekki eftir grænu ljósi Trump Erlent Sigríður fannst heil á húfi Innlent Tókst að leysa alla hvalina úr fjörunni Innlent Mikilvægt að fólk þurfi ekki að flýja húsnæði vegna ofnæmis Innlent Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Innlent Þriðjungur þjóðarinnar á Chess.com Innlent Leiðtogi í hvítrússnesku andspyrnuhreyfingunni frjáls Erlent „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Innlent Fleiri fréttir Tókst að leysa alla hvalina úr fjörunni Mikilvægt að fólk þurfi ekki að flýja húsnæði vegna ofnæmis Þriðjungur þjóðarinnar á Chess.com „Glæpsamlegar árásir,“ gæludýr í fjölbýli og gleði með Messi Fjörutíu grindhvalir fastir í Ólafsfirði Braust inn í íbúð í Laugardalnum og allir voru heima Lakasta þátttakan meðal kynsegin fólks Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Sigríður fannst heil á húfi Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar Þyrlan send út vegna göngumanns í sjálfheldu Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Ógnarhópar með tengsl við Kína, Aþena og hinseginhátíð í Hrísey Sæki um íslenska vegabréfsáritun til að ferðast annað „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Kattholt yfirfullt Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Tékkneski og bandaríski herinn ásamt flugsystrum á Akureyri Þinglok hvergi í augsýn: „Málþóf! Málþóf!“ Segir komu írsku lögreglunnar marka tímamót í leitinni að Jóni Þresti Vinnuslys í Laugardal þar sem maður fékk járnstöng í andlitið Ísland tekur þátt í aðgerðum gegn skuggaflota Rússlands Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Leit að Sigríði heldur áfram um helgina Kenningar um hvarfið, uggandi rafrettusalar og málabunkinn Flugvél á leið til Íslands lent í Manchester Hörður Svavarsson er látinn Allir úr stærsta árgangi sögunnar fengu inni Lýsa eftir Hlyni Sjá meira