Hollenskar fyrirsætur með tískusýningu á Ingólfstorgi 29. júlí 2011 12:00 Daphne Deckers er stödd hér á landi vegna þáttarins Holland´s Next Top Model. nordicphotos/Getty
hollenskir þátttakendur Sjö þátttakendur eru eftir í Holland´s Next Top Model. „Ísland er mjög frábrugðið Hollandi. Það er áskorun að koma hingað,“ segir sjónvarpsframleiðandinn Barbara frá Hollandi. Hún verður stödd hér á landi fram á miðvikudag við upptökur á sjónvarpsþættinum Holland"s Next Top Model ásamt hópi Hollendinga. Um er að ræða hollenska útgáfu af hinum vinsæla bandaríska þætti, America"s Next Top Model, sem ofurfyrirsætan Tyra Banks stjórnar. Sjö fyrirsætur eru eftir í hollenska þættinum en upphaflega sóttu um sex þúsund stúlkur til að fá að taka þátt. Stjórnandi er fyrirsætan fyrrverandi, Daphne Deckers. Hún lék í James Bond-myndinni Tomorrow Never Dies sem kom út 1997. „Við erum vön því að fara á hlýja og sólríka staði og höfum meðal annars farið til Suður-Afríku og Mexíkó. Hugmyndin um að heimsækja Ísland kom upp nokkrum sinnum og á endanum ákváðum við að skella okkur hingað,“ segir Barbara en núna er verið að taka upp sjöttu þáttaröðina. „Við vorum mjög forvitin að sjá landslagið og íslensku náttúruna.“ Stúlkurnar hafa í nógu að snúast meðan á dvöl þeirra stendur. Í gærmorgun fóru þær í köfun, þar sem Deckers var með í för, og einnig heimsækja þær nettímaritið Nude Magazine, tískufyrirtækið Spaksmannsspjarir og Andreu Brabin hjá Eskimo Models. Ljósmyndarinn Baldur Kristjánsson ætlar að mynda þær, eins og Monitor greindi frá í fyrradag. Á sunnudaginn verður svo tískusýning á Ingólfstorgi milli kl. 15 og 18. Þar sýna stúlkurnar föt frá tískuhönnuðinum Steinunni Sigurðardóttur. „Við erum mjög stoltar að fá að vera í fötum frá henni,“ segir Barbara. Tvö ár eru liðin síðan þátttakendur í fimmtu þáttaröð af Britain"s Next Top Model komu hingað til lands. Þá hittu þær einnig Andreu Brabin, sátu fyrir í Bláa lóninu og borðuðu þorramat í Fjörukránni í Hafnarfirði. Þá var hin íslenska Huggy Ragnarsson í dómnefndinni og sá hún einnig um að mynda stúlkurnar. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Megas er látinn Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Britney á stóra skjáinn Bíó og sjónvarp Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Tónlist Fleiri fréttir Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Sjá meira