Reyndu að svíkja fé af Vodafone 5. nóvember 2011 18:41
Vodafone varð fyrir barðinu á svikahröppum sem misnota inneignarkort. Fyrir árvekni starfsmanna tókst að koma í veg fyrir að fyrirtækið yrði fyrir milljóna króna tapi. Að minnsta kosti einn var handtekinn vegna málsins í vikunni. Fyrr í vikunni sendi Vodafone frá sér tilkynningu þar sem fram kom að fyrirtækið væri hætt að selja stórar pantanir af símkortum og Frelsisinneignum eftir að upp komst um umfangsmikla svikastarfsemi sem nota átti til að svíkja peninga. Fyrstu merki um að ekki væri allt með felldu hafi komið upp fyrir síðustu helgi, þegar söluaðilar tilkynntu um umfangsmikil kaup gegn reiðufé. Stuttu síðar urðu sjálfvirk eftirlitskerfi Vodafone vör við afar óhefðbundið hringimynstur úr umræddum símanúmerum. Fréttastofin veit um dæmi þess að maður hafi keypt inneignir í einum söluturni fyrir sextíu þúsunf krónur og greitt með reiðufé, hann hafi svo komið aftur daginn eftir og keypt annað eins. Svikahrapparnir, sem eru samkvæmt heimildum fréttastofu erlendir, munu hafa fundið leið til að breyta inneignarkortunum þannig að þau gáfu mun hærri inneign en keypt var fyrir. Inneignin var svo notuð til að hringja í gjalskyld númer í eigu svikahrappana erlendis, og þannig þurfti Vodafone svo að greiða mismunin á milli þeirra inneignar sem keypt var fyrir og þeirrar upphæðar sem hringt var fyrir. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Vodafone nú þegar orðið fyrir umtalsverðu fjárhagslegu tjóni vegna þessar svikahrappa, sem metið er á nokkrar milljónir Heimildir fréttastofu herma að einn maður hafi verið handtekinn í vikunni grunaður um að vera hluti af þessum svikum en honum hefur nú verið sleppt.Athugasemd: Eftir að frétt þessi birtist í sjónvarpsfréttum stöðvar 2 hafði Vodafone samband við fréttastofu til að koma þessari athugasemd á framfæri. Vodafone hefur ekki orðið fyrir milljónatjóni njóta vegna málsins. Árvekni starfsmanna og samstarfsaðila, auk skilvirkni í sjálfvirkum eftirlitskerfum, varð til þess að upp komst um fjársvikatilraunina og hægt var að grípa til viðeigandi ráðstafana. Hefði það ekki verið gert, hefði tjónið hins vegar getað orðið verulegt.
Mest lesið „Stundin sem við höfum óttast er runnin upp“ Erlent Tók smá snúning en aftur kominn á svipaðar slóðir Innlent Þrjú ár fyrir að svíkja út 156 milljónir og leggja inn á fjölskylduna Innlent Aðalmeðferð hafin í máli Sigurðar Fannars Innlent Háhyrning rak á land í Grafarvogi Innlent Tilfinningaþrungin ræða á þingi SÞ: „Stolt, fötluð, og óendanlega þakklát“ Innlent „Hjólið fellur á flugi, auðvitað er það alvarlegt“ Innlent Fannst látinn í hlíðum Esjunnar Innlent Musk sér eftir sumum færslunum sem hann birti um Trump Erlent Segir Ísland stunda hvítþvott í svörum til SÞ Innlent Fleiri fréttir Olíudreifing sýknuð af tug milljóna króna bótakröfu Costco Segir Ísland stunda hvítþvott í svörum til SÞ Aðalmeðferð hafin í máli Sigurðar Fannars Tók smá snúning en aftur kominn á svipaðar slóðir Neitaði að borga fyrir leigubílinn og braut rúðu í lögreglubíl Hnattræn hlýnun gerði hitabylgjuna í maí hlýrri og mun líklegri en ella Háhyrning rak á land í Grafarvogi Reisa tuttugu bekki til minningar um Bryndísi Klöru Tilfinningaþrungin ræða á þingi SÞ: „Stolt, fötluð, og óendanlega þakklát“ „Hjólið fellur á flugi, auðvitað er það alvarlegt“ Þrjú ár fyrir að svíkja út 156 milljónir og leggja inn á fjölskylduna Endósamtökin lýsa yfir þungum áhyggjum Grunur um að nefhjól úr flugvél hafi lent á Austurvelli „Fráleitt“ að halda að ríkisstjórnin bakki með veiðigjaldafrumvarpið Fannst látinn í hlíðum Esjunnar „Ert eiginlega hættur að finna lögreglumenn á samfélagsmiðlum“ Maðurinn á Esjunni er fundinn Ágúst Ólafur aðstoðar borgarstjóra Eldur í bílskúr á Álftanesi Nafn mannsins sem drukknaði við Örfirisey Persónuvernd lagði Landlækni en sektin milduð Rannsókn banaslyss í Brúará miði vel Guðrún spyr um há laun æðstu ráðamanna Fullyrðing um slaufun verknámsskóla „kolröng“ Rafmagn komið á aftur VG skoðar samstarf við aðra flokka fyrir kosningar næsta vor Grunur um íkveikju á Hjarðarhaga Mættu heim til lögreglumanns og ógnuðu honum með hníf Orri Harðarson er allur Látinn eftir líkamsárás en árásarmaðurinn gengur laus Sjá meira