Karpað um hornklofa og sérfræðiþekkingu 6. maí 2011 05:00 Fólk var ekki sammála um hvort nauðsynlegt væri að lögspekingar úrskurðuðu um það hvort lagafrumvörp stæðust stjórnarskrá. Fréttablaðið/gva
Kafli um mannréttindi verður fremstur í stjórnarskránni og í honum verður tekið fyrir möguleikann á herskyldu hér á landi, verði tillögur stjórnlagaráðs að veruleika. Fyrstu tillögurnar frá nefndum Stjórnlagaráðs um breytingar á stjórnarskránni voru teknar til umræðu og afgreiðslu á 7. ráðsfundi í gær. Nefnd C, sem fjallar meðal annars um dómstóla, lagði fram til afgreiðslu á fundinum tillögu sína að nýjum kafla um dómstóla. Kaflinn er viðameiri og ítarlegri en sá í gildandi stjórnarskrá. Nokkrar umræður urðu um ákvæði í kaflanum þar sem kveðið er á um að forseti skuli skipa dómara, eins og nú er. Þótti sumum óeðlilegt að það væri sérstaklega tiltekið, enda ætti ráðið alveg eftir að ræða kaflann um forseta Íslands, hlutverk hans og vald. Því var lagt til að orðin ‚Forseti Íslands‘ yrðu sett í hornklofa, svo fólk áttaði sig betur á að tillagan væri breytingum háð og alls ekki meitluð í stein. Hornklofaumræðan dróst nokkuð á langinn og sýndist sitt hverjum. Sumir töldu að þá mætti jafnframt nýta til að auðkenna þau atriði í tillögum ráðsins sem sæta tíðindum eða verðskulda sérstaka eftirtekt og umræðu. Niðurstaðan varð að einungis ‚Forseti Íslands‘ færi í hornklofa að sinni. Jafnframt lagði nefnd C fram tillögu til kynningar um svokallaða Lögréttu, nefnd sem hefði það hlutverk að veita Alþingi ráðgefandi álit á því hvort frumvörp standist stjórnarskrá. Skiptar skoðanir voru um það hvort tillagan gengi nógu langt og töldu sumir að niðurstaða nefndarinnar ætti að vera bindandi og verksvið hennar víðara; hún ætti til dæmis einnig að úrskurða um það hvort þingmenn væru löglega kjörnir eða hvort framkvæmdarvaldið hefði brotið í bága við stjórnarskrána. Mestar umræður urðu um það hvort eðlilegt væri að kveða á um það í stjórnarskrá að í nefndinni gæti aðeins setið fólk með þekkingu á stjórnlögum. Þannig töldu til dæmis Pawel Bartoszek, formaður nefndar C, og Íris Lind Sæmundsdóttir mjög mikilvægt að lögfrótt fólk veldist til að úrskurða um svo flókin lögfræðileg álitaefni. Aðrir, til dæmis Þorvaldur Gylfason, Andrés Magnússon, Katrín Oddsdóttir og Katrín Fjeldsted, lýstu andstæðri skoðun. Þau töldu að almenningur ætti að kjósa í nefndina, að minnsta kosti að hluta. Umræðum um tillögur, aðfaraorð og mannréttindakafla, sem sjá má hér til hliðar, var frestað til dagsins í dag. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Reynslubolti kveður lögregluna Innlent Leitaði á lögreglustöð til að komast úr járnunum Innlent Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Erlent Morðinginn í Brown háskóla fannst látinn Erlent Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Erlent Evrópa samþykkir 90 milljarða evra lán til Úkraínu Erlent Mikið álag á bráðamóttökunni á Akureyri Innlent Herða reglur og ráðast í endurkaup á skotvopnum Erlent Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Innlent Fimm ára dómur fyrir hnífaárás á fjölskylduföður Innlent Fleiri fréttir Starfslokasamningar undirstofnana kostað hátt í 175 milljónir Reynslubolti kveður lögregluna Leitaði á lögreglustöð til að komast úr járnunum Mikið álag á bráðamóttökunni á Akureyri Magnús Þór sjálfkjörinn Fimm ára dómur fyrir hnífaárás á fjölskylduföður Telur hagræðingaráformin þau metnaðarfyllstu Nauðsyn að skýra betur hvort eða hvenær læknar megi rjúfa þagnarskyldu Selfyssingar í 60 plús heilsueflingu klárir í jólin Skoða að koma á ferjusamgöngum milli Skotlands og Seyðisfjarðar Viðreisn gæti reynst í lykilstöðu milli blokkanna Frumvarp um kílómetragjald samþykkt og þingmenn komnir í jólafrí Barnavernd fylgist með fleiri ófrískum konum í neyslu en síðustu ár Fleiri óléttar konur í neyslu á borði barnaverndar og spennandi kosningar framundan Langvarandi einangrun ungrar konu gagnrýnd af Amnesty Selfoss stöðvaður í Bretlandi Þrettán nýir rafknúnir strætisvagnar teknir í notkun Zuism tekið af trúfélagaská eftir áralöng svik og pretti Mun áfram leiða lista Framsóknar í Múlaþingi Töpuðu 133 milljónum króna á kosningaári Reyndu að koma útlendingafrumvarpi að á síðustu stundu Súlunesmálið: Skoða þurfi lög er varða þagnarskyldu Samþykktu tillögu um uppbyggingu á Sorpu-lóð við Dalveg Spurningum Sigmundar Ernis svarað og málið ekki aftur í nefnd Þingstörfin á lokametrunum og styttist í jólafrí Naustin án bíla og eins og „löber“ með íslensku prjónamynstri Taka enn tuttugu þúsund króna beygju Ekið á kyrrstæðan bíl á Suðurstrandarvegi „Ellibætur“ frá ríkinu eigi að heyra sögunni til Áttu að taka tillit til þess að talsmaðurinn klikkaði Sjá meira